Breyting hefur verið gerð á fyrirkomulagi Uppsprettu Suðurlands sem fram fer í HorseDay höllinni í Ölfusi. Í stað þess að dreifa dagskránni yfir tvo daga verður öll hátíðin sameinuð á föstudaginn 6. nóvember og atvinnulífssýningin framlengd til klukkan 18:00. Dagskrá laugardagsins 7. nóvember fellur því niður.

Ákvörðunin var tekin í kjölfar samtala við nokkur fyrirtæki og hefur breytingin þegar skilað aukinni skráningu. Með því að þjappa dagskránni saman á einn dag er markmiðið að ná enn betri samþættingu milli faglegrar dagskrár og atvinnulífssýningarinnar. Gestir sem fylgjast með erindum og umræðum fá þannig tækifæri til að kynna sér fjölbreytt atvinnulíf Suðurlands, hitta fulltrúa fyrirtækja og mynda ný tengsl.

Hátíðin verður opin almenningi allan daginn. Nánari upplýsingar um dagskrá og gesti má finna á heimasíðu hátíðarinnar, uppspretta.sass.is. Einnig er vísað á Facebook-viðburð hátíðarinnar fyrir þá sem vilja kynna sér málið nánar eða fylgjast með tilkynningum.