Rangárþing eystra auglýsir eftir umsóknum í Menningarsjóð Rangárþings eystra fyrir vorúthlutun 2026 sbr. reglur um úthlutun styrkja úr sjóðnum. Styrkupphæðin er samkvæmt fjárhagsáætlun hvers árs.
Á sunnudaginn stendur Blái herinn, undir stjórn Tómasar Knútssonar, fyrir hreinsun í Landeyjafjöru í tilefni af alþjóðlega hreinsunardeginum, World Cleanup Day. Hreinsunin fer fram á milli klukkan 10 og 16.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) hafa opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands fyrir árið 2026. Sjóðurinn veitir mikilvægan stuðning við nýsköpun, atvinnulíf og menningu um allan landshluta. Umsóknarfrestur rennur út þann 21. október næstkomandi klukkan 14:00.
Vegagerðin og Strætó hafa hleypt af stokkunum nýjum áskriftarkortum. Um er að ræða svokölluð Byggðakort fyrir landsbyggðarstrætó, auk þess sem fyrirkomulag nemakorta hefur verið gert mun sveigjanlegra og hagkvæmara.
FUNDARBOÐ 310. fundur Byggðarráðs verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, fimmtudaginn 17. september 2026 og hefst kl. 08:15