Á sunnudaginn stendur Blái herinn, undir stjórn Tómasar Knútssonar, fyrir hreinsun í Landeyjafjöru í tilefni af alþjóðlega hreinsunardeginum, World Cleanup Day. Hreinsunin fer fram á milli klukkan 10 og 16.

Mæting er við Landeyjahöfn. Fyrirtækið Midgard Adventure leggur til bíla við höfnina og mun ferja fólk á rétta staði í fjörunni. Tómas mun taka á móti sjálfboðaliðum, leiðbeina og útvega poka til að tína í. Þátttakendur eru þó beðnir um að taka með sér eigin vinnuhandska.

 

 

Í fjörunni getur ýmislegt forvitnilegt rekið á land. Á dögunum fannst þar til að mynda sérstök rannsóknarbauja, svokölluð fellibyljabauja (e. SWIFT-buoy). Baujan er frá Háskólanum í Washington í Bandaríkjunum, þar sem teymi vísindamannsins Jims Thomsons notar slík tæki til að mæla ölduhæð, vind og sjávarstrauma í ofsaveðri og fellibyljum. Oft er þessum baujum varpað úr flugvélum beint niður í storminn til að safna gögnum. Utan á baujunni sem fannst eru upplýsingar og beiðni um að haft sé samband við háskólann. Þessi fundur sýnir vel hversu langt hafstraumar geta borið hluti og gerir fjöruferðir enn áhugaverðari.

 

Við hvetjum íbúa til að taka þátt í hreinsunarátakinu og leggja umhverfinu lið. Þetta er gott tækifæri til að eiga góðan dag utandyra, sinna mikilvægu verkefni í nærumhverfi okkar og jafnvel rekast á fleiri óvænta hluti sem hafið skilar á land. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðum Bláa hersins, blaiherinn.is, og á worldcleanupday.org.