Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) hafa opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands fyrir árið 2026. Sjóðurinn veitir mikilvægan stuðning við nýsköpun, atvinnulíf og menningu um allan landshluta. Umsóknarfrestur rennur út þann 21. október næstkomandi klukkan 14:00.

Sjóðnum er skipt í tvo meginflokka. Annars vegar er um að ræða styrki til menningar og samfélags og hins vegar til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Hámarksstyrkur til hvers verkefnis getur numið allt að 2,5 milljónum króna. Leitað er að hugmyndum sem styðja við samfélagsþróun, auka samkeppnishæfni, efla fjölbreytni í atvinnulífi og treysta menningarstoðir svæðisins. Við hvetjum íbúa og fyrirtæki í Rangárþingi eystra til að nýta þetta tækifæri og láta góðar hugmyndir verða að veruleika.

Uppbyggingarsjóðurinn er samkeppnissjóður þar sem vandaður undirbúningur skiptir miklu máli. SASS býður umsækjendum upp á gjaldfrjálsa ráðgjöf hjá byggðaþróunarfulltrúum áður en sótt er um. Jafnframt er bent á að fyrsta skrefið í umsóknarferlinu er að lesa úthlutunarreglur sjóðsins vandlega. Þannig tryggja umsækjendur að verkefnið samræmist skilyrðum og minnka líkur á mistökum við gerð kostnaðaráætlana.

Nánari upplýsingar, úthlutunarreglur og hlekk á rafræna umsóknargátt er að finna á vef Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sass.is.

https://www.sass.is/frettir/uppbyggingarsjodur-sudurlands-hefur-opnad-fyrir-umsoknir