Við fögnum þjóðhátíðardeginum saman á Hvolsvelli miðvikudaginn 17. júní. Meistaraflokkur kvenna í KFR sér um og skipuleggur hátíðardagskrána í ár fyrir sveitarfélagið og er dagskráin hin glæsilegasta. Tilvonandi 10. bekkingar Hvolsskóla sjá um morgunmat í Hvolnum og eru allir velkomnir.
350. fundur sveitarstjórnar verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, fimmtudaginn 11. júní 2026 og hefst kl. 12:00
Í dag hóf nýr veitingastaður, Laufey Bistro, starfsemi sína. Þetta er góð viðbót við þá þjónustu sem stendur íbúum og ferðafólki til boða hér á svæðinu.
Það var líflegt á skrifstofu sveitarstjóra á dögunum þegar Kristján Darri Antonsson bókaði viðtalstíma til að kynna hugmyndir sínar og teikningar að framtíðarskipulagi SS-vallarins á Hvolsvelli.
Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 100% starf á grunnskólastigi. Ráðið er tímabundið til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.