Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða framúrskarandi yfirlækni á heilsugæsluna í Rangárþingi. Á heilsugæslunni vinnur samhentur hópur af mjög hæfu og lausnamiðuðu starfsfólki að því markmiði að þjónusta skjólstæðinga stöðvarinnar. Rangárþing er einstaklega falleg sveit og góðar samgöngur.

Starfið er leiðtoga- og stjórnunarstarf sem felur í sér faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á starfsemi heilsugæslunnar. Um er að ræða bæði áhugavert og krefjandi starf í skemmtilegum hópi fyrir áhugasaman heimilislækni.

 
Helstu verkefni og ábyrgð

Ber ábyrgð á og sinnir heilsugæsluþjónustu í Rangárþingi

Skipulag og stjórnun læknisþjónustu á svæðinu

Rekstur heilsugæslustöðvarinnar í samvinnu með hjúkrunarstjóra

Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd

Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda

Viðbragðsvakt eftir kl 16 fyrir F1 útköll

Þátttaka í verkefnum innan stofnunarinnar

 
Menntunar- og hæfniskröfur

Íslenskt starfsleyfi sem læknir

Sérfræðiréttindi í heimilislækningum

Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

Hæfni í tjáningu í ræðu og riti

Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

Áreiðanleiki, jákvæðni, sveigjanleiki og árangursmiðað viðhorf

Íslenskukunnátta er skilyrði