Rangárþing eystra óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í starf skipulags- og byggingarfulltrúa. Skipulags- og byggingarfulltrúi ber ábyrgð á skipulagsgerð í sveitarfélaginu í samræmi við lög nr.123/2010 og reglugerðir auk framkvæmdar opinbers byggingareftirlits í samræmi við gildandi lög nr. 160/2010 og reglugerðir. Viðkomandi heyrir beint undir sveitarstjóra og ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra í öllum störfum sínum og ákvörðunum. Um fjölbreytt starf er að ræða í sveitarfélagi þar sem mikil uppbygging á sér stað. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laugardaginn 7. nóvember verður haldin spænsk matarupplifun í Félagsheimilinu Heimalandi.
Þann 11.nóvember mun Stórsveit íslands ásamt söngvurum halda tónleika í Hvolnum, Hvolsvelli.
Hringur, kór eldri borgara í Rangárþingi, fagnar 20 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni tímamótanna heldur kórinn afmælistónleika sunnudaginn 1. nóvember kl. 14:30 í hátíðarsal nýja skólahússins við Grunnskólann á Hellu.
Skógræktarfélag Rangæinga munum halda draugagöngu í Bolholtsskógi ásamt 10.bekk í Grunnskólanum á Hellu þann 1.nóvember kl 18.