- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Hringur, kór eldri borgara í Rangárþingi, fagnar 20 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni tímamótanna heldur kórinn afmælistónleika sunnudaginn 1. nóvember kl. 14:30 í hátíðarsal nýja skólahússins við Grunnskólann á Hellu.
Dagskráin verður fjölbreytt en auk kórsins koma fram Vinir Jenna og einsöngvarinn Sigurður Matthías Sigurðarson. Guðjón Halldór Óskarsson leikur á píanó og stjórnandi kórsins er Kristín Sigfúsdóttir. Þá verður frumsýnt hljóð- og myndband með efni úr starfi kórsins frá árunum 2019 til 2026 sem Pétur Einarsson hljóðmaður hefur unnið.
Strax að tónleikum loknum verður boðið upp á afmæliskaffi í menningarsalnum við Dynskála. Aðgangseyrir er 3.000 krónur og vonast stjórn kórsins til að sjá sem flesta á þessum góða degi.
