Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra hvetur eigendur íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu til að tryggja að húsnúmer séu ávallt sýnileg, auðlesin og fest upp á varanlegan hátt. Skýr húsnúmer geta skipt sköpum þegar sjúkraflutningafólk, slökkvilið eða aðrir viðbragðsaðilar þurfa að finna rétt hús eða íbúðir í neyð.
Rangárþing eystra auglýsir lausan til umsóknar skólaakstur við Hvolsskóla. Skv. núverandi fyrirkomulagi er um að ræða akstursleið í Landeyjum. Akstursleiðir geta þó verið breytilegar eftir notkun og þörf hverju sinni. 
Í tilefni sumarsólstöðunnar bjóða listamennirnir Lemos og Lehmann nærsamfélaginu til samveru í Tumastaðaskógi um næstu helgi. Þar mun fara fram opnun á verkefninu Finndu þína eigin á. Verkið samanstendur af þremur tímabundnum innsetningum sem eru skapaðar sérstaklega fyrir skóginn og byggja á áralöngu sambandi listafólksins við þennan fallega stað.
305. fundur Byggðarráðs verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, fimmtudaginn 18. júní 2026 og hefst kl. 08:15
17.júní hátíðarhöldin verða haldin hátíðleg í Fljótshlíð, undir fjöllunum og í Landeyjum.