253. fundur 13. júní 2019 kl. 12:00 - 15:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Elín Fríða Sigurðardóttir aðalmaður
  • Guðmundur Jón Viðarsson aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir oddviti
  • Benedikt Benediktsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Christiane L. Bahner aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Oddviti leitar eftir því að fá að bæta á dagskrá fundarins:
Lið 20, 9. fundi Fargráðs söguseturs, Lið 22, 70. fundi skipulagsnefndar, lið 23. umsögn um grænbók og lið 24. Breytingu á nefndarskipan skipulagsnefndar. Samþykkt samhljóða.

1.Kosning í Byggðarráð

1906049

Skv. 27. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra skal kjósa þrjá sveitarstjórnarmenn í byggðarráð til eins árs.
Tillaga er um að Elín Fríða Sigurðardóttir, Benedikt Benediktsson og Christiane L. Bahner verði kosin í byggðarráð.
Samþykkt samhljóða.
Tillaga er um að Elín Fríða Sigurðardóttir verði kosin formaður byggðarráðs og Benedikt Benediktsson varaformaður.
Samþykkt samhljóða.

2.Kjör oddvita og varaoddvita til eins árs

1906048

Skv. 7. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra skal kjósa oddvita og varaoddvita til eins árs í senn.
Tillaga er um að Lilja Einarsdóttir verði kosin oddviti og Benedikt Benediktsson varaoddviti.
Samþykkt með 6 greiddum atkvæðum AKH, EFS, BB, GHÓ, RB og GV. 1 situr hjá CLB.

3.Sumarleyfi sveitarstjórnar

1906052

Sveitarstjórn Rangárþings eystra gerir tillögu að sumarleyfi sveitarstjórnar skv. 8. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra. Í sumarleyfi sveitarstjórnar fer byggðarráð með störf og ákvarðanir sem sveitarstjórn hefur ella skv. 31. gr. um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra. Felldir eru niður reglulegir fundir sveitarstjórnar í júlí og ágúst, næsti fundur sveitarstjórnar 12. september 2019. Þess má geta að byggðarráð fundar að jafnaði síðasta fimmtudag í mánuði.
Tillagan samþykkt samhljóða.

4.Ósk um samstarf sveitarfélagsins við Tónsmiðju Suðurlands

1906047

Sveitarstjórn sér sér ekki fært að ganga til samstarfs að svo stöddu. Sveitarfélagið á og rekur Tónlistarskóla Rangæinga ásamt öðrum sveitarfélögum. Þar er boðið upp á fjölbreitt og metnaðarfullt nám fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.

5.Unicef á Íslandi; erindi til sveitarstjórnar

1906044

UNICEF á Íslandi hvetur öll sveitarfélög til að setja sér heildstætt og samræmt verklag, vegna gruns um ofbeldi og vanrækslu fyrir allar stofnanir sem starfa með börnum.
Sveitarstjórn vísar erindinu til félagsmálastjóra til úrlausnar og gagnaöflunar.
Samþykkt samhljóða.

6.Beiðni um styrkveitingu til Styrktarfélags Klúbbsins Stróks

1906051

Sveitarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu erindisins og sveitarstjóra falið að afla frekari upplýsinga.

7.Umsögn; Hvolsvegur 29, rekstrarleyfi

1906062

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.

8.Umsögn; Ysta Skála; gistileyfi

1906063

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.

9.Skipulagsnefnd - 71

1906002F

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð í heild sinni.
  • Skipulagsnefnd - 71 Þar sem umrætt svæði er innan þjóðlendu þarf að fá umsögn forsætisráðuneytis vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar. Skipulagsnefnd leggur einnig til að fá umsögn afréttarhafa þar sem að framkvæmdarsvæði er á afréttarsvæði V-Eyfellinga. Skipulagsfulltrúa falið að afla frekari gagna varðandi hönnun og staðsetningu brúarinnar. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og nafnið á hinni nýju spildu. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir landskiptin og nafnið á hinni nýju spildu.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við nafnið á spildunni. Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir nafnið á spildunni.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og nafnið á hinni nýju spildu. Nefndin fer fram á að uppdrætti verði breytt og teknir út skilmálar varðandi heimilar byggingar, en slíkt heyrir undir deiliskipulagsgerð og á ekki erindi á landskiptauppdrætti. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir nafnið á hinni nýju spildu.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins og felur skipulagsfulltrúa að afla frekari gagna. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar um að fresta erindinu.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd lýst vel á framkomnar tillögur. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur vel í þær tillögur að skipulagsbreytingum á Kirkjuhvolsreit sem lagðar hafa verið fram. Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar um að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd tekur undir athugasemd Vegagerðarinnar um að samráð skuli haft vegna nálægðar og tengingar við áningarstað Vegagerðarinnar. Skipulagsnefnd tekur undir athugasemdir Náttúrufræðistofnunar Íslands um að landi sé raskað eins lítið og mögulegt er þegar framkvæmdir hefjast og einnig að reynt verði að fella allar framkvæmdir/byggingar að umhverfinu. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að endanleg útfærsla aðalskipulagsbreytingar verði send Skipulagsstofnun til staðfestingar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir athugasemdir Náttúrufræðistofnunar Íslands um að landi sé raskað eins lítið og mögulegt er á meðan á framkvæmdum stendur á skipulagssvæðinu og að öll mannvirki verði felld að umhverfinu eins og kostur er. Sveitarstjórn samþykkir að aðalskipulagsbreytingin verði send Skipulagsstofnun til staðfestingar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulagsnefnd - 71 Lýsing deiliskipulags hefur verið auglýst og umsagnir umsagnaraðila borist. Tekið hefur verið tillit til athugasemda Minjastofnunar og verður gerður prufuskurður í rústahól inna skipulagssvæðisins. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar. Sveitarstjórn samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd tekur undir athugasemdir Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar um að byggingarskilmálar þurfi að vera skýrir þannig að byggingar falli vel að umhverfinu m.t.t. litasamsetningar og yfirbragðs. Skipulagsnefnd tekur undir óskir Vegagerðarinnar um að samráð skuli haft vegna nálægðar við tengingar og áningarstað Vegagerðarinnar. Skipulagsnefnd tekur undir athugasemdir Náttúrufræðistofnunar Íslands um að gæta þess að landi sé raskað eins lítið og mögulegt sé og að ekki verði plantað framandi, ágengum plöntum á svæðinu. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir framkomnar athugasemdir um að byggingarskilmálar þurfi að vera skýrir þannig að öll mannvirki á skipulagssvæðinu falli vel að umhverfinu og að landi sé raskað eins lítið og kostur er. Sveitarstjórn tekur undir athugasemdir Vegagerðarinnar um að samráð skuli haft vegna tengingar og áningarstaðs Vegagerðarinnar. Sveitarstjórn tekur undir athugasemdir Náttúrufræðistofnunar Íslands um að ekki verði plantað framandi, ágengum tegundum á skipulagssvæðinu. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd hefur farið yfir athugasemdir Skipulagsstofnunar frá 3. maí 2019 og tekur undir að byggingarskilmálar þurfi að vera skýrari og hróflað verði sem minnst við ásýnd svæðisins og lágmarka þannig neikvæð umhverfisáhrif. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framkomna breytingartillögu við deiliskipulagið þar sem að brugðist er við fyrrgreindum athugasemdum. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir athugasemdir um að byggingarskilmálar þurfi að vera skýrir og að ásýnd skipulagssvæðis verði sem minnst raskað. Sveitarstjórn samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins. Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að skoða nánar útfærslu á þjóðvegi 1 í samræmi við upphaflegar útfærslur.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi frá 1. júlí 2019 til 30. júní 2020. Bókun fundar Skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi frá 1. júlí 2019 til 30. júní 2020.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og heitin á hinum nýju lóðum. Bókun fundar Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og nöfnin á hinum nýju spildum.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd samþykkir veitingu stöðuleyfis til 30. september 2019. Bókun fundar Skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til 30. September 2019.
  • Skipulagsnefnd - 71 Skipulagsnefnd hafnar veitingu stöðuleyfis. Bókun fundar Sveitarstjórn hafnar veitingu stöðuleyfis.

10.36. fundur; Heilsu-, íþrótta og æskulýðsnefndar; 2. mai 2019

1906042

Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar.

11.Tónlistarskóli Rangæinga; 12. stjórnarfundur

1905058

Sveitarstjórn staðfestir fundargerð stjórnarinnar.

12.Bergrisinn; fundargerð 6. fundar stjórnar; 27. mai 2019

1906040

Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.

13.Gamli bærinn í Múlakoti; 16. fundur stjórnar

1905069

Lagt fram til kynningar.

14.Heilbrigðisnefnd Suðurlands; 196. fundur stjórnar; 9. mai 2019

1906045

Lagt fram til kynningar.

15.Samband íslenskra sveitarfélaga; 871. fundur stjórnar; 29. mai 2019

1906041

Lagt fram til kynningar.

16.Landeyjahöfn; Drög að matsáætlun vegna viðhaldsdýpkunar

1905088

Umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

17.Mennta - og menningarmálaráðuneyti; Námsstyrkir vegna nýliðunar kennara

1906046

Lagt fram til kynningar og vísað til fræðslunefndar til upplýsingar.

18.Skýrsla um starfsemi orlofs húsmæðra

1906050

Lagt fram til kynningar.

19.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2019

1902326

Lagt fram til kynningar.
Lilja Einarsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu dagsrkáliða 20.1 og Benedikt Benediktsson tekur við stjórn fundar. Guri Hilstad Olason tekur hennar sæti.

20.Fagráð Sögusetursins - 9

1905002F

Sveitarstjórn staðfestir fundargerð fagráðs Söguseturs í heild sinni.
  • 20.1 1904001 Staða Sögusetursins
    Fagráð Sögusetursins - 9 Fagráðið leggur til við sveitarstjórn að núverandi samningi um rekstur Söguseturs verði sagt upp. Bókun fundar Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og varaoddvita að endurskoða samning við rekstraraðila. Samþykkt samhljóða.
  • 20.2 1903145 Framtíðarstaðsetning Njálurefilsins
    Fagráð Sögusetursins - 9 Fagráðið ræddi ýmsa möguleika varðandi uppbyggingu Söguseturs og sýningu á Njálureflinum til framtíðar. Fagráðið leggur fram greinargerð varðandi næstu skref fyrir nýtt sýningarhús. Fagráðið beinir því til sveitarstjórnar að strax verði farið í undirbúning og hönnun þar sem að að stutt er í að refillinn verði tilbúinn til sýningar. Bókun fundar Lilja Einarsdóttir kemur aftur til fundar og Guri Hilstad Olason víkur af fundi.
    Sveitarstjórn þakkar Fagráði Sögusetursins fyrir metnaðarfullar tillögur.
    Til að hægt verði að sýna Njálurefilinn sem fyrst, þegar saumaskap við hann lýkur, telur sveitarstjórn hinsvegar farsælast að farið verði í undirbúning og hönnun á núverandi húsnæði Söguseturs. Sveitarstjórn telur ekki forsvaranlegt né ábyrgt, að svo stöddu, að byggja nýtt húsnæði undir Njálurefilinn né byggja við núverandi húsnæði. Sveitarstjórn óskar eftir fundi með fagráði Söguseturs þar sem málin verði rædd nánar.
    Samþykkt samhljóða.
  • 20.3 1808052 Njálurefillinn: Ferð til Bayeux í Frakklandi 25. - 29.4.2019
    Fagráð Sögusetursins - 9 Fagráðið fagnar heimsókninni og greinargóðri kynningu í kjölfar hennar. Fagráðið telur að heimsóknin hafi skilað góðum árangri og mikilvægt fyrir framtíð Njálurefilsins að vera í góðum samskiptum við sýningarhaldara í Bayeux. Lagðir fram minnispunktar frá fundi hópsins með Antoine Verney safnstjóra Bayeux Museums.
  • 20.4 1905020 9. fundur Fagráðs Sögusetursins; Önnur mál
    Fagráð Sögusetursins - 9 Enginn önnur mál rædd.

21.Aukafundaseta sveitarstjórnamanna

1906053

Lagt fram til kynningar.

22.Skipulagsnefnd - 70

1905004F

Sveitastjórn staðfestir bókun skipulagnefndar og svör við athugasemdum.
  • Skipulagsnefnd - 70 Farið var yfir tillögur að svörum við athugasemdum sem bárust á augýsingatíma tillögunnar. Samþykkt er tillaga að svörum sem skipulasfulltrúi lagði fyrir fundarmenn. Bætt var við svari við athugasemd frá Ólafi Oddssyni um gönguþverun við Apótek. Gönguþverun á þeim stað sem lagt er til í athugasemd uppfyllir ekki umferðaröryggi gangandi vegfarenda nema með mikum breytingum á hönnun vegarins. Einnig var bætt upplýsingum við svar við athugasemd Huldu Dóru í sambandi við undirgöng austan við Hvolsvöll. Vegna grunnvatnsstöðu er ekki talið forsvaranlegt að gera undirgöng á þeim stað sem lagt er til í athugasemd.
    Tillögur að svörum samþykktar með ofangreindum viðbótum.

23.Grænbók; um stefnu í málefnum sveitarfélaga

1905100

Lagt fram til kynningar umsögn sveitarstjórnar við Grænbók, stefnu um málefni sveitarfélaga.
Umsögn sveitarstjórnar Rangárþings eystra við Grænbók, stefnu um málefni sveitarfélaga.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra fagnar því að verið sé að vinna að stefnumótun í málefnum sveitarstjórnarstigsins. Hins vegar gagnrýnir sveitarstjórn þann stutta tíma sem sveitarfélögum er ætlaður til að fjalla um verkefnið og veita umsögn við framkomna Grænbók. Í dreifðari byggðum er algengt að fundartími sveitarstjórna sé einu sinni í mánuði. Af þeim sökum hefur sveitarstjórn ekki gefist nægur tími til umfjöllunar um umræðuskjalið eins og æskilegt hefði verið.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra vill koma því á framfæri að mikilvægt er að skilgreina með skýrum hætti hvað sé átt við með því að sveitarfélag sé öflug og sjálfbær stjórnsýslueining og hvað í því felst. Telst það til ósjálfbærni að vinna að málefnum í samvinnu við önnur sveitarfélög í gegnum byggðarsamlög ? Þetta atriði þarf að vera skýrt áður en lengra er haldið og markmiðum náð.
Mikilvægt er að sameiningar sveitarfélaga byggist ekki eingöngu á höfðatölu sjónarmiði, heldur sé einnig horft til annarra þátta m.a. landfræðilegra, enda skipta þá framúrskarandi samgöngur verulegu máli. Koma þarf á verulegum hvata sem felur í sér samfélagslegan og fjárhagslegan ávinning svo sveitarfélög sjái hag sinn í að fara í frjálsar sameiningar. Vinna við sameiningar sveitarfélaga þarf að byggja á faglegum rökum, vönduðum vinnubrögðum og gæta þarf að því að flækja stjórnsýsluna að óþörfu svo að þriðja stjórnsýslustigið verði ekki óhjákvæmilegt með t.d. hvefis- eða þéttbýlisráðum. Enda er fjallað um í Grænbókinni að gæta skuli að sjálfsstjórn sveitarfélaga og rétti þeirra til að ráða málefnum sínum á eigin ábyrgð, svo sem verkefnum og fjárhag. Sveitarstjórn Rangárþings eystra telur því að forðast skuli það eins og kostur er að fara í þvingaðar sameiningar sveitarfélaga.
Í tengslum við þá umræðu sem átt hefur sér stað varðandi þær fyrirætlanir að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendi Íslands, vill sveitarstjórn Rangárþings eystra hnykkja á því að skipulagsvald sveitarfélaganna verði virt, enda mikilvægt að íbúar hvers sveitarfélags hafi með raunverulegum hætti tækifæri til þátttöku og áhrifa í sínu nærsamfélagi.
Sveitarstjórn telur jákvætt að boðað hafi verið til aukalandsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem fjallað verður um málið sérstaklega.
F.h. Rangárþings eystra
Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri
Lilja Einarsdóttir, oddviti
Sveitarstjórn staðfestir umsögnina.

24.Skipulagsnefnd; Breyting á nefndarskipan

1906077

Víðir Jóhannsson hefur beðist lausnar frá störfum skipulagsnefndar, vegna anna. Í hans stað tekur sæti Þórir Már Ólafsson.
Sveitarstjórn þakkar Víði fyrir vel unnin störf í skipulagsnefnd og býður Þóri Má velkomin til starfa.
Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 15:00.