323. fundur
12. mars 2024 kl. 12:00 - 12:13 í fjarfundi
Nefndarmenn
Anton Kári Halldórssonaðalmaður
Sigríður Karólína Viðarsdóttiraðalmaður
Árný Hrund Svavarsdóttiraðalmaður
Bjarki Oddssonaðalmaður
Tómas Birgir Magnússonaðalmaður
Lilja Einarsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
Margrét Jóna Ísólfsdóttirritari
Fundargerð ritaði:Margrét Jóna ÍsólfsdóttirSkrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð ef einhverjar eru. Rafn Bergsson forfallaðis á fundinn og ekki náðist að boða varamann í tíma.
1.Tillaga um að fella niður fastan fund Sveitarstjórnar í mars
2403039
Fyrir fundi liggur tillaga um að fella niður fastan fund Sveitarstjórnar í mars, þar sem hann rekst á við landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Sveitarstjórn samþykkir, samhljóða, að fella niður fastan fund sveitarstjórnar í mars.
2.Tillaga um aukafund sveitarstjórnar 21. mars 2024
2403041
Fyrir fundi liggur tillaga um aukafund sveitarstjórnar, sem haldinn yrði fimmtudaginn 21. mars kl 12.00.
Sveitarstjórn samþykkir, samhljóða, að halda aukafund sveitarstjórnar fimmtudaginn 21. mars kl 12.00.
3.Tillaga um að fella niður fastan fund Sveitarstjórnar í maí 2024
2403040
Fyrir fundi liggur tillaga um að fella niður fastan fund Sveitarstjórnar í maí, þar sem hann lendir á Uppstigningardegi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fella niður fastan fund sveitarstjórnar í maí.
4.Tillaga um aukafund sveitarstjórnar 16. maí 2024
2403042
Fyrir fundi liggur tillaga um aukafund sveitarstjórnar, sem haldinn yrði fimmtudaginn 16. maí kl 12.00.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að halda aukafund sveitarstjórnar fimmtudaginn 16. maí kl 12.00.