320. fundur 21. desember 2023 kl. 12:00 - 12:10 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Árný Hrund Svavarsdóttir aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Árný Lára Karvelsdóttir yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Oddviti setur fund og óskareftir athugasemdum við fundarboð.

1.Hækkun útsvarsálagningar vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk

2312044

Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, þar sem lagabreyting sem kveður á um lækkun tekjuskatts um 0,23% og jafnfram heimilað hækkun hámarksútsvar sveitarfélaga um sama hlutfall.

Breytingin mun ekki leiða til þess að heildarálögur á skattgreiðendur í sveitarfélaginu muni hækka heldur er um að ræða tilfærslu á milli ríkis og sveitarfélaga.
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir sveitarstjórn Rangárþings eystra að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97%.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 12:10.