252. fundur 06. júní 2019 kl. 12:00 - 14:22 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Elín Fríða Sigurðardóttir aðalmaður
  • Guðmundur Jón Viðarsson aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir oddviti
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
  • Anna Runólfsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
Dagskrá

1.Rangárþing eystra; Ársreikningur 2018

1904268

Helstu niðurstöður úr ársreikningi 2018, í þús. kr.

Rekstrarreikningur



A-hluti

A og B hluti

Rekstrartekjur......................................... 1.802.080

1.937.481
Rekstrargjöld.......................................... (1.541.865) (1.596.956)
Fjármagnstekjur og -gjöld...................... 61.191
39.049
Tekjuskattur............................................ 0
(951)
Rekstrarniðurstaða.................................. 249.609 295.971

Efnahagsreikningur



A hluti

A og B hluti
Eignir:
Fastafjármunir....................................... 2.929.925

3.108.243
Veltufjármunir....................................... 413.814
323.507
Eignir samtals........................................ 3.343.739

3.431.750
Skuldir og eigið fé:
Eiginfjárreikningur................................ 2.391.185

2.283.011
Skuldbindingar...................................... 139.666
139.666
Langtímaskuldir.................................... 477.049 675.789
Skammtímaskuldir................................ 335.839 333.284
Skuldir og skuldbindingar alls.............. 952.554 1.148.739
Eigið fé og skuldir samtals................... 3.343.739
3.431.750


Sjóðstreymi




A-hluti

A og B hluti
Veltufé frá rekstri................................. 345.330 385.162
Handbært fé frá rekstri......................... 67.513 103.530
Fjárfestingahreyfingar.......................... (630.159) (610.641)
Fjármögnunarhreyfingar....................... 433.454 377.918
Lækkun á handbæru fé........................ (129.193) (129.193)
Handbært fé í árslok


20.942 20.942




Sveitarstjórn lýsir yfir ánægju sinni með góða útkomu ársreiknings og þakkar starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir sinn þátt í góðri niðurstöðu. Jákvæð niðurstaða skýrist að mestu leiti vegna framlags frá Héraðsnefnd Rangæinga vegna sölu lands, fjölgunar íbúa og þar af leiðandi auknum útsvarstekjum.
Ársreikningur ársins 2018 samþykktur samhljóða.

Bókun fulltrúa L-lista
Ég fagna jákvæðri niðurstöðu ársreiknings fyrir árið 2018. Það gefur augaleið að árið 2018 var gott ár fyrir sveitarfélagið og gefur von um áframhaldandi velgengni.
Talsvert misræmi er milli áætlana og raunútkomu í mörgum liðum. Við breytingar á fjármálum ber sveitarstjórn að gera viðauka við fjárhagsáætlun jafnóðum, einkum þegar um stór útgjöld er að ræða sem eru ekki talin innan venjulegs ramma svo og þegar tekjur hækka til muna.
Vonandi er stefnt að því að hafa þetta í lagi framvegis, enda er mikilvægi þar nefnt sem hluti af innra eftirliti í skýrlu endurskoðenda.

2.Grænbók; um stefnu í málefnum sveitarfélaga

1905100

Sveitarstjóra og oddvita falið að senda inn athugasemd um Grænbók inn í samráðsgátt, í samræmi við umræðu fundarins.
Samþykkt samhljóða.

3.Umsögn; Hlíðarvegur 7 Veitingaleyfi

1904231

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðlar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

4.Umsögn; Hellishólar hótel gistiskáli 2

1802022

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðlar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

5.Menningarnefnd - 27

1905001F

Fundargerð samþykkt í heild.

6.Menningarnefnd - 28

1905005F

Sveitarstjórn lýsir yfir ánægju með nýtt fyrirkomulag um úthlutun menningarstyrkja í sveitarfélaginu og óskar styrkhöfum til hamingju.
Fundargerð samþykkt í heild.
  • Menningarnefnd - 28 Menningarnefnd Rangárþings eystra leggur til að eftirfarandi verkefni hljóti styrk úr Menningarsjóð Rangárþings eystra

    Sigurður Flosason: Jazz undir fjöllum: 300.000
    Rut Ingólfsdóttir: Messías í tveimur kirkjum: 100.000
    860 ljósmyndaklúbbur: Útiljósmyndasýning í Miðbæ Hvolsvallar: 350.000

    Menningarnefnd óskar styrkþegum kærlega til hamingju með úthlutunina.
    Bókun fundar Sveitarstjórn lýsir yfir ánæju með nýtt fyrirkomulag um úthlutun menningarstyrkja í sveitarfélaginu og óskar styrkhöfum til hamingju.
  • Menningarnefnd - 28 Menningarviðburðir í Rangárþingi eystra

    Það er virkt menningarstarf í Rangárþingi eystra og hefur vorið einkennst af glæsilegum viðburðum, hvort sem það er í tónlist eða leiklist. Menningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með það frábæra og þakkláta starf sem unnist hefur. Menningarnefnd telur það mikilvægt að einhver fulltrúi sveitarfélagsins sé til staðar á þeim viðburðum sem fram fara innan sveitarfélagsins og færi þátttakendum þakklætisvott fyrir hið óeigingjarna starf sem fram fer.

    Kjötsúpuhátíð 2019
    Auglýsing útbúin vegna viðburðarstjóra og "ballhaldara."


    Afsteypa af höggmynd Nínu og Nínulundur.
    Friðrik Erlingsson fer yfir stöðu mála.

    Bókun fundar Sveitarstjórn fagnar fjölbreyttu menningarstarfi í sveitarfélaginu og öflugu starfi menningarnefndar.

7.42. fundur Fræðslunefndar Rangárþings eystra

1906036

Fundargerð samþykkt í heild.

8.14. fundur velferðarnefndar Rangárþings eystra

1906035

Sveitarstjóra og oddvita falið að leggja loka hönd á starfsmannastefnu sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt í heild.

9.39. fundur stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu

1906034

Fundargerð staðfest í heild.

10.204. fundur Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.

1906032

Liður 2
Sveitarstjórn lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið og þakkar íbúum fyrir áhuga þeirra og tillitsemi við innleiðingu lífrænnar flokkunar og þeirra byrjunarörðuleika sem skapast geta við upphaf nýrra verkefna.
Fundargerð staðfest í heild.

11.280. fundur Sorpstöðvar Suðurlands

1906033

Fundargerð staðfest í heild.

12.Samband íslenskra sveitarfélaga; Boðað til aukalandsþings 6. september

1905101

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:22.