10. fundur 29. nóvember 2022 kl. 10:00 - 11:40 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Baldur Ólafsson aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Elvar Eyvindsson aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon varamaður
Starfsmenn
  • Guðmundur Úlfar Gíslason embættismaður
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Guðmundur Úlfar Gíslason Skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá
Óskað er eftir því að bæta máli nr. 2211045 við dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.

1.Deiliskipulag -
Rjómabúið

2211063

Deiliskipulagið fyrir Rjómabúið nær til 1,7 ha úr landi Bollakots L163995. Gert er ráð fyrir gestahúsum ásamt þjónustuhúsi, eða að hámarki 5 hús. Mænishæð húsa er allt að 6,0m mv. gólfhæð. Aðkomuvegur verður frá Bollakotsvegi.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og að hún verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Deiliskipulag - Hlíðarendakot

2102081

Fh. landeigenda óskar Elín Þórisdóttir eftir því að deiliskipuleggja uþb. 26,5 ha svæði jarðarinnar Hlíðarendakots. Fyrirhugað er að byggja við núverandi íbúðarhús, auk þess að koma fyrir tveimur heilsárshúsum á sömu lóð. Settir eru byggingarreitir í kringum önnur hús á bæjartorfunni til mögulegrar stækkunar. Einnig verða afmörkuð svæði þar sem gert verður ráð fyrir fimm íbúðarhúsalóðum vestan við bæjarstæðið og einni austan við það.
Tillagan var auglýst frá 14. septmeber með athugasemdarfresti til 26. október. Engar athugasemdir komu fram á auglýsingatíma tillögunnar. Einnig var tillagan send til umsagnar. Í umsögn Umhverfisstofnunar kemur fram að mikilvægt sé að fossinn Drífandi sé merktur inn á uppdrátt og að fjallað sé um hann í greinargerðinni. Í umsögn Heilbrigðiseftirlits suðurlands er óskað eftri þvi að vatnsból verði staðsett og að vatnsvernd verði skilgreind í samræmi við reglugerð þar að lútandi. Búið er að bregðast við fyrrgreindum umsögnum í skipulagsgögnum. Í umsögn Veðurstofunnar kemur fram að ef um er að ræða eldsumbrot í vesturhluta Kötlu eða norðurhluta Eyjafjallajökuls sé mögulegt að umrætt svæði verði fyrir áhrifum hlaupvatns. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að ef komi til náttúruhamfara þá er í gildi viðbragðsáætlun í sveitarfélaginu. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Deiliskipulag - Völlur 2

2211042

Deiliskipulagið nær til ca 1,2 ha lands úr landi Vallar 2 L164207, ntt. Vallarhorn. Gert er ráð fyrir allt að 250 m2 íbúðarhúsi og allt að 300 m2 skemmu. Mænishæð bygginga er allt að 8,0m.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og að hún verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Landskipti - Moldnúpur

2211047

Óskað er eftir því að stofna ca 1,4 ha lóð út úr Moldnúpi L163783 í samræmi við uppdrátt unnum af Verkfræðistofunni EFLA, dags. 2.11.2022. Hin nýja lóð fær staðfangið Moldnúpshestar. Landskiptin eru í samræmi við deiliskipulag sem samþykkt var í sveitarstjórn dags. 10. mars 2022.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og staðfang hinnar nýju spildu.

5.Deiliskipulag - Uppsalir, breyting

2211048

Óskað eftir breytingu á deiliskipulagi á Uppsölum L164200. Breytingin felst í því að gerð er ný lóð, Uppsalir 4 sem er 3,0 ha að stærð. Heimilt verður að byggja íbúðarhús/bílskúr, allt að 250 m2, gestahús allt að 50 m2 og skemmu allt að 250 m2.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og að hún verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6.Dílaflöt - Ósk um uppbyggingu á verslun- og þjónustu

2211049

Aðilar sem eru áhugasamir um kaup á landspildunni Dílaflöt L234644 óska eftir afstöðu sveitarfélagsins til breytingar á landnotkun á spildunni þannig að hægt sé að byggja upp lítil gestahús til útleigu fyrir ferðamenn. Um er að ræða breytingu á 10-15 ha af norð-vestur hluta spildunnar sem yrði skilgreint sem verslun- og þjónusta (VÞ).
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í erindið.

7.Landskipti - Eystra Seljaland

2211067

Landeigandi óskar eftir því að skipta ca 7,0 ha spildu út úr Eystra-Seljalandi L163760 skv. uppdrætti unnum af Verkfræðistofunni EFLA, dags. 10.11.2022. Hin nýstofnaða lóð mun fá staðfangið Seljó.
Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins.

8.Deiliskipulag - Voðmúlastaðir

2211069

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir 5 byggingarreitum sem hver um sig er 900 m2 að stærð. Á hverjum reit er heimilt að byggja allt að 60 m2 gestahús til útleigu fyrir ferðamenn.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og að hún verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

9.Deiliskipulag - Ytri-Hóll 1

2207180

Um er að ræða deiliskipulag á ca 1,0 ha spildu úr landi Ytri-Hóls 1 L163950. Gert er ráð fyrir veiðihúsi allt að 100 m2 að stærð með mænishæð allt að 8,0 m, 2-3 svefnhús samanlagt allt að 160 m2 að stærð með mænishæð allt að 5,0 m og aðstöðuhúsi, allt að 80 m2 að stærð með mænishæð allt að 5,0 m.
Tillagan var auglýst frá 7. september með athugasemdarfresti til 19. október. Einnig var tillagan send til umsagnar. Í umsögn Veðurstofunnar kemur fram að ef um er að ræða eldsumbrot í vesturhluta Kötlu eða norðurhluta Eyjafjallajökuls sé mögulegt að umrætt svæði verði fyrir áhrifum hlaupvatns. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að ef komi til náttúruhamfara þá er í gildi viðbragðsáætlun í sveitarfélaginu. Í sameiginlegri athugasemd sumarhúsaeiganda, sem eru í nálægð við skipulagssvæðið sem og eiganda jarðarinnar Ytri Hóls, koma fram mótmæli við fyrirhugaðri staðsetningu veiðihúss. Staðsetning er m.a. talin vera of nálægt núverandi sumarhúsum, aukning verði á umferð og ónæði í kringum mannvirkin, öflun neysluvatns sé ótrygg, um sé að ræða skerðingu á úrvals landbúnaðarlandi og að skilgreina þurfi breytta landnotkun á reitnum. Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir framkomnar athugasemdir varðandi nálægð lóðarinnar við sumarhúsin. Í uppfærðri tillögu hefur verið komið til móts við athugasemd varðandi fjarlægð og er búið að færa lóðina frá fyrrgreindum sumarhúsum um ca 100 m. Er þá heildarfjarlægð á milli byggingarreita þess sumarhúss sem næst er og fyrighugaðrar lóðar ríflega 200m. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að óhjákvæmilega verði einhver aukning á umferð o.þ.l. ónæði í kringum mannvirkin, sérstaklega á meðan að veiðitímabilinu stendur. Það geti þó varla talist meiriháttar. Varðandi skerðingu á úrvals landbúnaðarlandi þá bendir nefndin á að um er að ræða mjög lítin hluta úrvals landbúnaðarlands sveitarfélagsins, eða ca 1,0 ha. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að starfsemin samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2024, kafli 4.17.3, þar sem að heimild er fyrir annari atvinnustarfsemi á landbúnaðarsvæðum. Ekki þurfi því að skilgreina aðra landnotkun. Skiplags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

10.Hvammur lóð 176754 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

2211045

Sýn ehf. óskar eftir framkvæmdarleyfi fyrir uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Hvammur lóð L176754. Uppdrættir eru eftir Sigurð Lúðvík Stefánsson frá Íslandsturnum ehf. dags. 15.nóvember 2022.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við að veitt verði framkvæmdarleyfi fyrir uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Hvammur lóð L176754 að undangenginni jákvæðri niðurstöðu úr grenndarkynningu. Grenndarkynnt verði fyrir eiganda Hvamms L163770.

Fundi slitið - kl. 11:40.