179. fundur 28. mars 2019 kl. 08:15 - 10:15 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Elín Fríða Sigurðardóttir formaður
  • Christiane L. Bahner
  • Benedikt Benediktsson varaformaður
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Fjármála- og skrifstofustjóri
Dagskrá

1.SASS; Svæðisskipulag Suðurhálendið; tilnefning fulltrúa

1903249

SASS kallar eftir tilnefningu tveggja kjörinna fulltrúa og eins kjörins til vara frá hverju bæjar- og sveitarfélagi á Suðurlandi sem á land að Suðurhálendinu.
Byggðarráð tilnefnir Anton Kára Halldórsson og Lilju Einarsdóttur sem aðalfulltrúa og Guðmund Viðarsson til vara.
Samþykkt samhljóða

2.Fagráð Sögusetursins - 8

1903003F

Fundargerð samþykkt að öðru leiti.
  • 2.1 1903145 Sögusetrið; úttekt á húsnæði
    Fagráð Sögusetursins - 8 Skipulags- og byggingarfulltrúi fór yfir niðurstöður úttektar á núverandi húsnæði Sögusetursins og niðurstöður kostnaðargreiningar við endurbætur á því húsnæði. Ljóst er að kostnaðurinn við endurbæturnar er á þriðja hundrað milljónir króna.
    Fagráð Sögusetursins leggur til við Sveitarstjórn Rangárþings eystra að byggt verði nýtt hús sem hýsir Njálurefilinn og starfsemi tengda honum á lóð við Austurveg. Jafnframt leggur fagráðið til að núverandi húsnæði Sögusetursins verði selt og fjármagnið sett í nýja byggingu. Einnig skal leita eftir tillögum um hönnun á nýju húsnæði.
    Fagráðið bendir á að hægt er að leita eftir styrkjum til fjármögnunar á verkefninu.
    Bókun fundar Byggðarráð vísar málinu til sveitarstjórnar.
  • 2.2 1811016 Fyrirspurn varðandi rekstrarfyrirkomulag Sögusetursins
    Fagráð Sögusetursins - 8 Fagráð Sögusetursins harmar að ekki hafi borist svar við formlegu bréfi Bjargar Árnadóttur.

    Formanni falið í samvinnu við sveitarstjóra að skoða rekstrarsamning Sögusetursins og svara bréfinu hið fyrsta.
  • 2.3 1903200 Fagráð Sögusetursins; 8. fundur; önnur mál
    Fagráð Sögusetursins - 8 Ferð til Bayeux í Frakklandi
    Gunnhildur fór yfir ferðina sem farin verður í lok apríl til að skoða Bayeux refilinn í Frakklandi. Um er að ræða 22 manna hóp fólks sem að hefur verið að sauma reglulega í Njálurefilinn ásamt tveimur fulltrúum frá sveitarfélaginu, sveitarstjóra og formanni Fagráðs Sögusetursins.

3.12. fundur jafnréttisnefndar; 6. 3. 2019

1903211

Fundargerð staðfest.

4.13. fundur jafnréttisnefndar; 13.3.2019

1903212

Fundargerð staðfest.

5.35. fundur; Heilsu- íþrótta og æskulýðsnefndar; 6.3.2019

1903207

Fundargerð staðfest.

6.Samgöngu- og umferðarnefnd; 11. fundur; 20.3 2019

1903280

Sveitarstjóra falið að sækja um styrki í styrkvegasjóð.
Lið 3. önnur mál, vísað til svetiarstjórnar.
Fundargerð staðfest að öðru leiti.

7.65. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu; 14.3.2019

1903214

Fundargerð staðfest

8.37. fundur stjórnar félags- og skjólaþjónustu; 12.3.2019

1903209

Fundargerð staðfest.

9.Tónlistarskóli Rangæinga; 11. stjórnarfundur

1903154

Fundargerð staðfest.

10.544. fundur stjórnar SASS; 1.3.2019

1903213

Fundargerð staðfest.

11.278. fundur stjórnar Sorpstöðvar suðurlands; 11.3.2019

1903208

Fundargerð staðfest.

12.Héraðsráðsfundur; 14.03.2019

1903283

Fundargerð staðfest.

13.Samband íslenskra sveitarfélaga; 869. fundur; 15.3.2019

1903242

Fundargerð löggð fram.

14.Umboðsmaður alþingis; álit; heimildir sveitarstjórna til valdframsals vegna ráðninga

1903244

15.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2019

1902326

Fundi slitið - kl. 10:15.