200. fundur 25. febrúar 2021 kl. 08:15 - 09:05 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson varaformaður
  • Christiane L. Bahner aðalmaður
  • Guri Hilstad Ólason varamaður
Starfsmenn
  • Árný Lára Karvelsdóttir embættismaður
  • Lilja Einarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Árný Lára Karvelsdóttir Markaðs- og kynningarfulltrúi
Dagskrá
Varaformaður byggðarrás setur fund, í fjarveru formanns og leitar eftir athugasemdnum við fundarboð, sem engin eru.
Óskað er eftir að bæta einu máli á dagskrá, lið 1 Framkvæmdastjóður aldraðra; brunaviðvörunarkerfi 2021 aðrir liðir færast eftir því.
Samþykkt samhljóða.

1.Framkvæmdasjóður aldraðra; brunaviðvörunarkerfi 2021

2102083

Lögð fram til staðfestingar umsókn í framkvæmdasjóð aldraðra vegna endurnýjunar brunaviðvörunarkerfis í eldri hluta Hjúkurnar- og dvalarheimilisins Kirkjuhvols.
Byggðarráð samþykkir að sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs aldraðra vegna endurnýjunar á brunaviðvörunarkerfi í eldri hluta Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Kirkjuhvols. Heildarkostnaðaráætlun fyrir verkefnið er 4.655.508 kr og er sótt um styrk fyrir 40% af kostnaði við verkefnið.

2.Íþróttafélagið Dímon samningur 2021-2022 endurnýjun

2101047

Afgreiðslu málsins frestað.

3.Félagsheimilið Hvoll; umræður um nýtingu húsnæðis

2102019

Markaðs- og kynningarfulltrúa er falið að vinna áfram að málinu og afla frekari upplýsinga.

Samþykkt samhljóða

4.Almenningar; Ósk um styrk til landgræðslu 2021

2102056

Félag landeigenda á Almenningum óskar eftir styrk til uppgræðslu á landsvæðinu Almenningum.
Byggðarráð samþykkir að veita styrk til uppgræðslu á Almenningum að upphæð 300.000 kr. eins og undanfarin ár.

Samþykkt samhljóða.

5.Fjallskilanefnd Fljótshlíðar; Beiðni um styrk vegna uppgræðslu á Fljótshlíðarafrétt 2021

2102080

Uppgræðslufélags Fljótshlíðar óskar eftir styrk til landbótaverkefna á Fljótshlíðarafrétti.
Byggðarráð samþykkir að veita styrk til landbótaverkefna á Fljótshlíðarafrétt að upphæð kr. 300.000.- eins og undanfarin ár.
Samþykkt samhljóða

6.Tillaga minni sveitarfélaga - Frumvarp um íbúalágmark

2102059

Lögð fram tillaga sem hópur minni sveitarfélaga hefur unnið í því skyni að hún gæti komið í stað íbúalágmarks, með það að markmiði að styrkja og efla sveitarstjórnarstigið, ekki hvað síst með sameiningum.
Lagt fram til kynningar.

7.Kvennaathvarfið; ósk um styrk fyrir árið 2021

2102061

Samtök um Kvennaathvarf óska eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2021 að fjárhæð 150.000 kr
Byggðarráð samþykkir að veita rekstrarstyrk til Kvennaathvarfsins að kr. 75.000.- vegna ársins 2021.

Samþykkt samhljóða.

8.Umsögn; Lambafell nýtt rekstrarleyfi fnr. 225-8766

2102079

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

9.Umsögn; Lambafell nýtt rekstrarleyfi

2102077

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

10.Umsögn; Lambafell nýtt rekstrarleyfi fnr. 227-4367

2102078

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt samhljóða.

11.SASS; 567. fundur stjórnar; 5.2.2021

2102057

Fundargerð 567. fundar SASS lögð fram til staðfestingar.
Fundargerð staðfest.

12.Katla jarðvangur; 54. fundur stjórnar 01.07.2020

2102073

Fundargerð 54. fundar Kötlu jarðvangs lögð fram til staðfestingar.
Fundargerð staðfest.

13.Katla jarðvangur; 55. fundur stjórnar 03.09.2020

2102074

Fundargerð 55. fundar Kötlu jarðvangs lögð fram til staðfestingar.
Fundargerð staðfest.

14.Katla jarðvangur; 56. fundur stjórnar 19.10.2020

2102075

Fundargerð 56. fundar Kötlu jarðvangs lögð fram til staðfestingar.
Fundargerð staðfest.

15.Umsögn; Goðaland lóð Gistiheimili

1803012

Tilkynning um að starfsemi sé hætt í Kennarabústað, Goðalandi.
Lagt fram til kynningar

16.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2021

2101021

Lögð fram eftirfarandi mál sem lögð hafa verið fram í samráðsgátt.
Mál nr. 375, frumvarp til laga um jarðalög (einföldun regluverks,vernd landbúnaðarlands, upplýsingaskyldu o.fl).
Mál nr. 418, frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða(atvinnu- og byggðakvótar o.fl.).
Mál nr. 419, frumvarp tillaga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja).
Lagt fram til kynningar.

17.Covid19; Upplýsingar

2003019

Lagt fram til kynningar, upplýsingar frá almannavörnum og sóttvarnalækni vegna Covid 19.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:05.