177. fundur 31. janúar 2019 kl. 08:15 - 09:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Elín Fríða Sigurðardóttir formaður
  • Christiane L. Bahner
  • Benedikt Benediktsson varaformaður
Starfsmenn
  • Árný Lára Karvelsdóttir ritari
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Árný Lára Karvelsdóttir Markaðs- og kynningarfulltrúi
Dagskrá

1.Samstarf um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa

1901068

Byggðarráð vísar málinu til Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.

2.Þing um málefni barna 21.-22. nóvember 2019

1901061

Byggðarráð Rangárþings eystra tekur vel í erindið og tilnefnir Birnu Sigurðardóttur, skólastjóra Hvolsskóla, sem tengilið sveitarfélagsins við embætti Umboðsmanns barna vegna þings um málefni barna 21.-22. nóvember. Byggðarráð mun styðja við þátttöku barna úr sveitarfélaginu á þinginu.

3.Ráðstefna Ungmennaráða á Suðurlandi 2019; Boðsbréf til sveitarstjórna

1901050

Byggðarráð Rangárþings eystra þakkar fyrir boð á ráðstefnu ungmennaráða á Suðurlandi. Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri, verður fulltrúi Rangárþings eystra á ráðstefnunni.

4.Umsögn; Hótel Drangshlíð gistileyfi

1901062

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar aðrir umsagnaraðilar hafa skilað inn sinni umsögn.
Elín Fríða Sigurðardóttir víkur af fundi

5.Umsókn um tækifærisleyfi; Þorrablót í Íþróttahúsinu á Hvolsvelli

1901069

Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar aðrir umsagnaraðilar hafa skilað inn sinni umsögn.
Elín Fríða Sigurðardóttir kemur aftur inn á fund

6.Samgöngu- og umferðarnefnd 2018-2022

1901014

Sveitarstjóra falið að vinna að tillögum nefndarinnar. Fundargerðin staðfest.

7.Menningarnefnd - 25

1901004F

1. liður: Byggðarráð samþykkir að Jazz undir fjöllum fái styrk upp á 300.000.
  • Menningarnefnd - 25 Menningarnefnd leggur til að veittur verður styrkur upp á kr. 300.000 fyrir verkefnið Jazz undir fjöllum 2019.
  • Menningarnefnd - 25 Umræður um þorrablót í sveitarfélaginu. Unnið verður áfram að þeim tillögum sem fram komu.
  • Menningarnefnd - 25 Menningarnefnd ræðir um Kjötsúpuhátíðina og framtíð hennar. Samþykkt að leggja fyrir erindi á næsta fund sveitarstjórnar varðandi hugmyndir nefndarinnar.

8.7. fundur fagráðs Sögusetursins

1901013

1. liður
Byggðarráð samþykkir að gerð verði úttekt á húsnæði Sögusetursins. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vinna að málinu.

Fundargerðin staðfest í heild sinni.

9.193. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands

1901073

10.Bergrisinn; Aðalfundur 18. janúar 2019

1901058

Sveitarstjóra falið að kanna möguleika á VISS vinnustað. Byggðarráð leggur til við skipulagsnefnd að hugað verði að búsetuúrræðum fyrir fatlaða í vinnu við skipulagsgerð í Rangárþingi eystra.

11.542. fundur stjórnar SASS; 11.01.2019

1901066

12.63. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu; 17.01.19

1901067

13.Stefnumörkun í ferðaþjónustu í Rangárþingi eystra

1711104

14.Íslandsmót verk- og iðngreina og framhaldsskólakynning - Mín framtíð 2019

1901048

Byggðarráð vísar málinu til kynningar í Fræðslunefnd sveitarfélagsins.

15.Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 1088-2018

1901051

Fundi slitið - kl. 09:00.