Kirkjukórar Breiðabólstaðarprestakalls og Kór Odda og Þykkvabæjarkirkju hafa verið að æfa saman í vetur. Saman skipa þeir yfir 50 manna kór sem ætlar að halda tónleika í Hvolnum Hvolsvelli fimmtudaginn 9. maí kl. 20.00.
Einsöngvarar eru Anna Kristín Guðjónsdóttir, Berglind Hákonardóttir, Björk Berglind Gylfadóttir, Hróbjartur Heiðar Ómarsson og Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir
stjórnandi er Guðjón Halldór Óskarsson
Aðgangseyrir kr. 3.000 - Posi verður á staðnum.
Allir hjartanlega velkomnir