Uppbyggingarsjóður Suðurlands verður með kynningarfund á sjóðnum þriðjudaginn 7. febrúar kl. 12:15. Fundurinn tekur um 30 mínútur og hvetjum við alla áhugasama til að mæta.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fyrri úthlutun 2023 í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Kynntu þér áherslur og úthlutunarreglur hér: https://www.sass.is/uppbyggingarsjodur/
Við hvetjum einnig umsækjendur til þess að setja sig í samband við ráðgjafa á vegum SASS, sjá www.sass.is/radgjof
Umsóknarfrestur er til 1. mars kl. 16:00.