Kammerkór Rangæinga ásamt Rut Ingólfsdóttur, fiðluleikara, einsöngvurunum Aðalheiði Margréti Gunnarsdóttur, Þórunni Elfu Stefánsdóttur, Sigríði Aðalsteinsdóttur og Bjarna Guðmundssyni, mun flytja kafla úr Messías eftir Handel á tónleikum í Þykkvabæjarkirkju miðvikudaginn 27. mars kl.20.00 og Breiðabólstaðarkirkju miðvikudaginn 3. apríl kl.20.00. 
Stjórnandi og orgelleikari er Guðjón Halldór Óskarsson
Aðgangur ókeypis