Sveitarfélagið Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag og vill hvetja íbúa til að taka þátt í að skapa skemmtilegt og lifandi umhverfi í sundlauginni á Hvolsvelli.
FUNDARBOÐ 346. fundur sveitarstjórnar verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, fimmtudaginn 12. mars kl. 12:00.
Þriðjudaginn 10. mars er farsældardagur fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk í Hvolsskóla og Öldunni en þá verður kynning á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og farsældarlögum fyrir nemendur. Arna Hrönn Aradóttir verkefnastjóri innleiðingar farsældar mun sjá um fræðsluna og mun hún ræða við nemendur beggja skólanna um morguninn í bekkjarhópum.
Viltu eiga skemmtilegt og gagnlegt sumar? Rangárþing eystra auglýsir eftir Verkstjóra og Flokkstjórum til starfa við Vinnuskóla Rangárþings eystra sumarið 2026.
Söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar Tvistsins fór fram í gær miðvikudaginn 4. mars og var afar vel heppnuð. Alls voru 14 atriði á dagskrá þar sem ungmennin stigu á svið og sýndu fjölbreytta hæfileika í söng og flutningi. Stemningin var frábær og ljóst að tónlistaráhugi er mikill meðal ungmenna. Keppnin var haldin í matsal Hvolsskóla og voru fjölmargir áhorfendur.