- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Ungmennaráð Rangárþings eystra stendur fyrir páskaeggjaleit næstkomandi laugardag, þann 4. apríl. Leikurinn hefst klukkan 10:00 og eru allir áhugasamir hvattir til að taka þátt.
Páskaeggin verða falin víðs vegar um Hvolsvöll en til að hjálpa leitendum munu vísbendingar birtast jafnt og þétt á Instagram-síðu ungmennaráðsins.
Þetta er skemmtileg leið til að eiga ánægjulega stund saman og njóta páskanna í sveitarfélaginu okkar.