- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Vegna síendurtekinnar slæmrar umgengi við grenndarstöðina á Hvolsvelli hefur stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu tekið þá ákvörðun að loka grenndarstöð Sorpstöðvarinnar á Hvolsvelli. Vegna þessara breytinga er íbúum á svæðinu bent á að fara með allt umframsorp sem kemur frá heimilum á Sorpstöðina á Strönd. Íbúum í Rangárþingi er bent á að þeir fasteignaeigendur í Rangárvallasýslu sem greiða sorpeyðingargjald fá afhent eitt klippikort á ári sem inniheldur heimild til losunar á allt að 5m3 af gjaldskyldum úrgangi. Kortin eru afhent á skrifstofu sveitarfélagsins við Austuveg 4 á Hvolsvelli en einnig á móttökustöðinni á Strönd. Klippikortin veita aðgang að móttökustöðinni á Strönd og því er nauðsynlegt að hafa klippikortið ávallt meðferðis hvort sem komið er með gjaldskyldan eða ógjaldskyldan úrgang.
Í stað grenndarstöðvarinnar hefur byggðarráð Rangárþings eystra samþykkt að koma fyrir nýjum leikvelli sem mun þjóna ungum íbúum sveitarfélagsins og fjölskyldum þeirra. Leiksvæðið verður hannað með opnum náttúrulegum efnivið. Á leiksvæðinu fá börn tækifæri til að kanna umhverfi sitt og sýna sjálfstæði. Leiksvæðinu er ætlað að vera skapandi vettvangur til leiks og griðastaður fjölskyldna í sveitarfélaginu til að njóta saman útiveru í því fallega umhverfi sem sveitarfélagið okkar býður upp á.