276. fundur
11. mars 2021 kl. 12:00 - 14:55 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
Elín Fríða Sigurðardóttiraðalmaður
Guðmundur Jón Viðarssonaðalmaður
Lilja Einarsdóttirsveitarstjóri
Rafn Bergssonaðalmaður
Guri Hilstad Ólasonaðalmaður
Baldur Ólafssonvaramaður
Anna Runólfsdóttirvaramaður
Starfsmenn
Margrét Jóna Ísólfsdóttirritari
Fundargerð ritaði:Margrét Jóna ÍsólfsdóttirSkrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
1.Markaðssetning Rangárþings eystra 2021
2101044
Sveitarstjórn þakkar fyrir greinargóðar kynningar.
2.Undirbúningur að stofnu sjálfseingarfélags um vörslu og rekstur sýningar um Njálurefli
2103041
Tillaga er um að fulltrúar í stjórn óstofnaðrar sjálfseignastofnunar um vörslu og rekstur sýningar á Njálurefli verði fyrir hönd sveitarstjórnar Lilja Einarsdóttir og Anton Kári Halldórsson og til vara Guri Hilstad Ólason og Elín Fríða Sigurðardóttir. Samþykkt samhljóða.
3.Kirkjuhvoll; fjárhagsáætlun 2021
2102042
Lögð fram til umræði og samþykktar fjárhagsáætlun Kirkjuhvols fyrir árið 2021.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
4.Steinar 3 - Ósk um heimreið
2102064
Atli Pálsson óskar eftir því að lögð verði heimreið að Steinum 3, A-Eyjafjöllum.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna að lausn málsins. Samþykkt samhljóða.
Anna Runólfsdóttir víkur af fundi undir lið 5.
5.Njálsgerði 10; söluferli
2012066
Sveitarstjórn staðfestir kauptilboð eignarinnar að Njálsgerði 10. Einnig er sveitarstjóra veitt umboð til að undirrita öll skjöl vegna sölu og veðsetningar fasteignarinnar. Samþykkt samhljóða.
Anna Runólfsdóttir kemur aftur til fundar.
6.Skráning lögbýlis; Eyvindarholt, ósk um umsögn.
2102082
Kjartan Garðarsson óskar eftir umsögn sveitarstjórnar um stofnun lögbýlis úr tveimur spildum, sem koma úr landi Eyvindarholts.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við stofnun nýs lögbýlis. Samþykkt samhljóða.
7.Styrkbeiðni; Jazz undir fjöllum 2021
2103001
Lögð fram styrkbeiðni frá Sigurði Flosasyni fyrir jazzhátíð undir Fjöllum sumarið 2021 sem fyrir hugað er að halda að Skógum. Óskað er eftir styrk að upphæð 500.000.- kr.
Sveitarstjórn vísar beiðninni frá. Árið 2019 var settur á fót Menningarsjóður Rangárþings eystra og bendir sveitarstjórn forsvarsmönnum Jazz undir fjöllum á að sækja um styrk í sjóðinn. Samþykkt samhljóða.
Húsnæðisáætlun Rangárþings eystra hefur verið unnin í samvinnu við Eflu verkfræðistofu. Haukur Ásberg starfsmaður Eflu kemur til fundar og kynnir áætlunina.
Sveitarstjórn þakkar Hauki Ásberg og Jóhönnu fyrir greinargóða kynningu á nýrri Húsnæðisáætlun Rangárþings eystra. Ný húsnæðisáætlun lögð fram og samþykkt samhljóða.
Byggðarráð - 199Byggðarráð samþykkir að samstarfi um iðjuþjálfa verði haldið áfram, að því gefnu að vilji sé til hins sama hjá öðrum aðilum samningsins og hlutur aðildarsveitarfélaga í stöðugildi aukist ekki. Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð - 200Byggðarráð samþykkir að sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs aldraðra vegna endurnýjunar á brunaviðvörunarkerfi í eldri hluta Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Kirkjuhvols. Heildarkostnaðaráætlun fyrir verkefnið er 4.655.508 kr og er sótt um styrk fyrir 40% af kostnaði við verkefnið.
Byggðarráð - 200Byggðarráð samþykkir að veita styrk til landbótaverkefna á Fljótshlíðarafrétt að upphæð kr. 300.000.- eins og undanfarin ár. Samþykkt samhljóða
Skipulagsnefnd - 96Skipulagsfulltrúa er falið að vinna áfram að málinu í samvinnu við landeigenda.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd - 96Tillagan var auglýst frá 18. nóvember 2020 með athugasemdarfresti til og með 30. desember 2020. Einnig var tillagan send til umsagnaraðila. Í athugasemd Vegagerðarinnar kemur fram að óskað er eftir því að veghelgunarsvæði stofn- og tengivega sé sýnt á uppdráttum. Brugðist hefur verið við óskum Vegagerðarinnar. Í umsögn Minjastofnunar Íslands kemur fram að áður en að ráðist verði í framkvæmdir á bæjarhól Stórólfshvols og á lóð þar sem núverandi íbúðarhús Stórólfshvols stendur, þurfi að fá fornleifafræðing til að grafa könnunarskurði á svæðinu. Á það við um framkvæmdir á svæðinu kringum kirkjuna og safnaðarheimilið og á og í kringum byggingarreiti B8, B9, B10 og B11 og einnig á því svæði þar sem talið er að Magrivöllur/Birga hafi staðið áður. Brugðist hefur verið við athugasemd Minjastofnunar í greinargerð skipulagsins. Skipulagsnenfd samþykkir tillöguna og mælist til þess að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirgerðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.
Skipulagsnefnd - 96Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að gerð verði breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 þar sem gert verði ráð fyrir efnisvinnslu á svæðinu á meðan unnið er við landmótun skv. deiliskipulagi. Jafnframt er ákvörðun skipulagsnefndar á fundi nr. 93 um grenndarkynningu framkvæmdarinnar dregin til baka þar sem að málið fer nú í opinbert kynningarferli skv. skipulagslögum nr. 123/2010.Bókun fundarSveitarstjórn samþykkir að gerð verði breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 þar sem að gert verði ráð fyrir efnisvinnslu í Ráðagerði á meðan að unnið er við landmótun skv. deiliskipulagi. Samþykkt samhljóða.
Skipulagsnefnd - 96Lýsing aðalskipulagsbreytingar hefur nú þegar verið auglýst og umsagnarfrestur liðinn. Umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum. Tillagan hefur verið kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með opnu húsi hjá skipulagsfulltrúa 1. febrúar 2021. Ekki var leitað eftir umsögn Umhverfisstofnunar þar sem að umrætt svæði er ekki á náttúruverndarsvæði né á svæði sem nýtur sérstakrar verndar (2. mgr. 68. gr. laga nr. 60/2013). Í umsögn Minjastofnunar Íslands kemur fram að norðvestan við húsið Gömlurétt sé gömul rétt. Telur Minjastofnun að fá þurfi fornleifafræðing á svæðið til þess að mæla réttina upp og kanna hvort fleiri minjar leynist innan skipulagssvæðis. Skipulagsnefnd bendir á að rétt sú sem vísað er í er öll utan við fyrirhugað deiliskipulagssvæði. Skiuplagsnefnd leggur áherslu á að tekið sé fram í greinargerð deiliskipulagsins að fá þurfi fornleifafræðing á svæðið til þess að gera könnunarskurð áður en farið verði í framkvæmdir á því svæði innan byggingarreits sem liggur að gömlu réttinni. Skipulagsnefnd bendir einnig á að nú þegar er búið að raska því svæði innan fyrirhugaðs deiliskipulagssvæðis, sem liggur að gömlu réttinni, með þéttum trjágróðri. Í umsögn Veðurstofu Íslands kemur fram að ef um gos er að ræða í vesturhluta Kötlu, er mögulegt að svæðið verði fyrir áhrifum hlaupvatns. Skipulagsnefnd bendir á að komi til náttúruhamfara þá er í gildi viðbragðsáætlun fyrir sveitarfélagið. Í umsögn Skipulagsstofnunar er bent á að mikilvægt sé að hafa virkt samráð við hagsmunaaðila, þmt. aðliggjandi lóðarhafa. Skipulagsnefnd tekur undir ábendingu Skipulagsstofnunar. Einnig bendir Skipulagsstofnun á að rökstyðja þurfi þá ákvörðun að bæta við fleiri íbúðarlóðum á svæðinu. Skipulagsnefnd bendir á að aðeins er verið að bæta við einni íbúðarlóð á svæðinu. Önnur lóðin af tveimur, skv. tillögu að deiliskipulagi, er nú þegar skilgreind sem íbúðarlóð og á lóðinni Gamlarétt er íbúðarhús. Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki tillöguna til auglýsingar og eftir yfirferð Skipulagsstofnunar verði hún auglýst skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir tillöguna og að eftir yfirferð Skipulagsstofnunar verði hún auglýst skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.
Skipulagsnefnd - 96Skipulagsnefnd samþykkir framkomna skipulagstillögu og greinargerð. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan ásamt greinargerð verði samþykkt og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bókun fundarSveitarstjórn samþykkir tillöguna og að hún verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni í samræmi við 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.
Skipulagsnefnd - 96Skipulagsnefnd samþykkir framkomna óverulega breytingu á deiliskipulagi við Hellishóla. Skipulagsnefnd leggur til að breytingin verði afgreidd skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með grenndarkynningu. Grenndarkynnt verði fyrir aðliggjandi lóðarhöfum.Bókun fundarSveitarstjórn samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.
Skipulagsnefnd - 96Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og staðföngin á hinum nýju spildum.Bókun fundarSveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landskiptin og staðföngin á hinum nýju spildum. Samþykkt samhljóða.
Skipulagsnefnd - 96Skipulagsnefnd samþykkir framkomna tillögu að viðbyggingu við Gilsbakka 29b og að hún verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Gilsbakka 27, 29, 29a, 30, 31, 32 og 33.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar. Samþykkt samhljóða.
Skipulagsnefnd - 96Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsgerð verði heimiluð.Bókun fundarSveitarstjórn samþykkir að deiliskipulagsgerð verði heimiluð á Eystra Seljalandi í samræmi við hugmyndir landeiganda. Samþykkt samhljóða.
14.Menningarnefnd - 39
2102005F
Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 39. fundar Menningarnefndar.
Menningarnefnd - 39Menningarnefnd lýsir yfir ánægju sinni yfir fjölda og gæðum þeirra umsókna er bárust í Menningarsjóð að þessu sinni.
Sex umsóknir bárust í sjóðinn að heildarupphæð 1.900.000. Ekki var unnt að styrkja allar umsóknir en Menningarnefnd leggur til að eftirfarandi verkefni hljóti styrk úr vorúthlutun Menningarsjóðs Rangárþings eystra.
Rjómabúið Bollakoti: 150.000 kr. Ljósmyndasýning 860 á Miðbæjartúni: 400.000 kr. Tónleikaröð í Midgard: 300.000 kr.
Menningarnefnd - 39Menningarnefnd stefnir að því að halda Kjötsúpuhátíð helgina 27. - 29. ágúst nk. Umræður fóru fram um skipulagningu og utanumhald hátíðarinnar.
Starfs- og kjaranefnd - 3Starfs og kjaranefnd fjallar um málið og fellur tillagan innan ramma kjarasamninga.
Starfs- og kjaranefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og leggur til að sveitarstjórn samþykki tillöguna.Bókun fundarSveitarstjórn staðfestir bókun starfs- og kjaranefndar.
Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 51Óskað er eftir færslu á starfsdegi sem skráður er 23. apríl verði færður og skipt í tvo daga þ.e. lokað verður klukkan 12:00 þann 25. júní og opnað klukkan 12:00 þann 3. ágúst.
Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 51Sólbjört Sigríður Gestsdóttir, leikskólastjóri, fer yfir málefni leikskólans Arkar, s.s. starfsemi deilda, húsnæðismál og starfsmannamál. Þróunarverkefni Snemmtæk íhlutun í lestri barna er í yfirlestri og stefnt er að innleiðingu á verkefninu á árinu. Sveitarstjóri fer yfir húsnæðismál leikskólans og hvernig málin standa þar.
Fræðslunefnd þakkar leikskólastjóra fyrir góða yfirferð.
Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 51Birna Sigurðardóttir, skólastjóri Hvolsskóla, fer yfir málefni skólans. Vegna húsnæðismála í leikskólanum hefur elsta deild leikskólans verið í mat í skólanum og félagsmiðstöðin hefur fengið annað svæði innan skólans. Covid hefur sannarlega haft áhrif innan skólans og hafa orðið breytingar á skólastarfi og ýmsum föstum viðburðum. Birna fer einnig yfir starfsmanna- og húsnæðismál í skólanum.
Fræðslunefnd þakkar skólastjóra fyrir góða yfirferð.
Fræðslunefnd grunnskóla og leikskóla - 51Fræðslunefnd ræðir um mögulegar tilnefningar úr sveitarfélaginu til Íslensku Menntaverðlaunanna 2021. Lagt fram til kynningar.
Á haustmánuðum sótti Rangárþing eystra um þrjá styrki í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Sótt var um styrki til uppbyggingar við Gluggafoss, Kvernufoss og Nauthúsagil. Í úthlutun nú í mars kom í ljós að sveitarfélagið hlaut styrki í öll verkefnin.
Lagt fram til kynningar. Sveitarstjórn fagnar þeim styrkjum sem samþykktir voru til nauðsynlegra úrbóta á álagssvæðum á ferðamannastöðum í sveitarfélaginu og þakkar Framkvæmdarsjóði ferðamannastaða fyrir styrkveitingarnar. Samþykkt samhljóða.
22.Ný leikskóli; skýrsla um mat á fjárhagslegum áhrifum skv. 66. grein sveitarstjórnarlaga
2103015
Áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatt tekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins. KPMG vann óháð mat á fjárhagslegum áhrifum byggingu nýs leikskóla í Rangárþingi eystra, skv. 66. grein sveitarstjórnarlaga.
23.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2021
2101021
Lögð fram eftirfarandi mál sem lögð hafa verið fram í samráðsgátt. Mál nr. 273 frumvarp til laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablaðið og aukatekjur ríkissjóðs (gjaldfrjáls rafræn útgáfa), Mál nr. 561 frumvarp til laga um greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins(samþætting þjónustu, hlutverk o.fl.), Mál nr 562 frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998