72. fundur 11. apríl 2022 kl. 16:00 - 16:50 á skrifstofu Rangárþings ytra
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson ritari
  • Hjalti Tómasson formaður
  • Guðmundur Gíslason aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
  • Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Lilja Einarsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Anton Kári Halldórsson Ritari
Dagskrá

1.Brunavarnir Rangárvallasýslu bs; Rekstraryfirlit jan-apr 2022

2204023

Rekstraryfirlit fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2022 lagt fram til kynningar.
Yfirlit yfir rekstur Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins liggur ekki fyrir að svo stöddu. Afgreiðslu frestað.

2.Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.; Ársreikningur 2021

2202006

Ársreikningur brunavarna Rangárvallasýslu bs fyrir árið 2021 lagður fram til staðfestingar.
Lagður fram ársreikningur Brunavarna Rangárvallasýslu bs. fyrir árið 2021. Margrét Jóna Ísólfsdóttir fjármálastjóri Rangárþings eystra fer yfir ársreikning.
Ársreikningur samþykktur samhljóða.

3.Fyrirspurn Dagrenningar; Sameiginlegt húsnæði

2204024

Magnús Kristjánsson f.h. Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli óskar eftir áliti stjórnar brunavarna Rangárvallasýslu á þeim möguleika að byggja sameiginlega björgunarmiðstöð á Hvolsvelli.
Stjórn þakkar fyrir erindið og tekur vel í famkomna hugmynd. Stjórn lýsir yfir áhuga sínum á að skoða verkefnið með hlutaðeigandi aðilum og vísar málinu áfram til næstu stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Samþykkt samhljóða.

4.Brunavarnir Rangárvallasýslu; Brunavarnaráætlun

2105034

Endanleg útgáfa Brunavarnaráætlunar brunavarna Rangárvallasýslu bs. lögð fram til undirritunar.
Stjórn lýsir yfir ánægju sinni með nýsamþykkta brunavarnaráætlun fyrir Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. og þakkar öllum þeim sem tóku þátt í gerð hennar fyrir vel unnin störf.
Sveitarstjórar aðildarsveitarfélaga undirrita Brunavarnaráætlun Brunavarna Rangárvallasýslu bs.

Fundi slitið - kl. 16:50.