Föstudaginn 27. maí undirrituðu D- og N-listi málefna- og samstarfssamnings milli um myndun meirihluta sveitarstjórnar í Rangárþingi eystra. Ný sveitarstjórn mun taka til starfa á fyrsta fundi sínum þann 2. júní 2022. 

Tillaga verður lögð fram um að Tómas Birgir Magnússon verði oddviti Rangárþings eystra, að Anton Kári Halldórsson verði ráðin sveitarstjóri Rangárþings eystra og Árný Hrund Svavarsdóttir verði formaður byggðarráðs Rangárþings eystra.