Greiningarfundir á ljósmyndum verða annan hvern föstudag kl 10:00 og fyrsti fundurinn er næstkomandi föstudag, 26. janúar. Greiningarfundirnir verða í Litla salnum í Hvolnum á Hvolsvelli. Á fundunum verður lögð áhersla á að greina fólk, staði og fleira á ljósmyndum úr safni Ottó Eyfjörð sem starfaði sem ljósmyndari í Rangárvallasýslu.

Fundirnir verða eftirfarandi daga:

26. janúar

9. febrúar

23. febrúar

8. mars

Á fundum varpar starfsmaður skjalasafnsins ljósmyndum upp á tjald og leitar eftir aðstoð fundargesta við að greina efni myndanna. Kaffi á könnunni og allir velkomnir.

Héraðsskjalasafn Árnesinga