Dagur kvenfélagskonunnar er í dag, fimmtudaginn 1. febrúar. Í Rangárþingi eystra eru sex kvenfélög sem eru algjörlega ómissandi hluti af okkar góða samfélagi. Kvenfélögin leggja sig fram um að sinna sinna góðgerðarverkefnum af alúð og natni en eru einnig vettvangur fyrir konur til að koma saman og eiga góðar stundir saman.

Kvenfélögin í Rangárþingi eystra eru

Kvenfélagið Eining í Hvolhrepp, stofnað 1926

Kvenfélagið Hallgerður í Fljótshlíð, stofnað 1923

Kvenfélagið Bergþóra í Vestur-Landeyjum, stofnað 1935

Kvenfélagið Freyja í Austur-Landeyjum, stofnað 1934

Kvenfélagið Eygló undir Vestur-Eyjafjöllum, stofnað 1944

Kvenfélagið Fjallkonan undir Austur- Eyjafjöllum, stofnað 1939

 

Í tilefni dagsins birtist þessi frétt á síðu Kvenfélagasambands Íslands

1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar. Dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, (1930) var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar árið 2010 til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í yfir 140 ár. Það var enda löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu.

Kvenfélög og kvenfélagskonur eru hvattar til að muna eftir deginum og jafnvel gera sér dagamun hver og ein eða saman, en einnig að vera tilbúnar til að taka á móti hamingjuóskum og athygli þennan dag.
Ekki er ætlast til þess af kvenfélagskonum að þær standi sjálfar að hátíðahöldum þennan hátíðisdag.
Mörg kvenfélög minnast dagsins þó með ýmsum hætti og er það auglýst innan kvenfélaganna og héraðssambanda þeirra.

Stjórn og starfsfólk Kvenfélagasambandsins óska öllum kvenfélagskonum til hamingju með daginn og þakkar þeim það góða starf sem þær vinna í sínu samfélagi.