Álagningarseðlar fasteignagjalda hafa verið birtir rafrænt á ísland.is.

Líkt og undanfarin ár munu álagningarseðlar ekki berast á pappír en eru þess í stað aðgengilegir rafrænt. Allt fyrir umhverfið!

Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar og munu kröfur birtast rafrænt í heimabanka. Hægt er að nálgast greiðsluseðla á Ísland.is

Hvernig nálgast ég álagningarseðilinn minn? (lesist til enda)

  1. Ferð inná www.island.is
  2. Skráir þig inn á „mínar síður“
  3. Smellir á „Pósthólf“
  4. Þar er smellt á „Álagningarseðill fasteignagjalda 2023“ sem er að finna þar í listanum.

Þar er hægt að sækja álagningarseðil á pdf-sniði eða prenta hann út.

Ef einhver vandamál koma upp er hægt að leita til skrifstofu Rangárþings eystra í síma 488-4200 eða með því að senda tölvupóst á netfangið hvolsvollur@hvolsvollur.is