Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra býður til opinna umræðu- og kynningarfunda um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030.
 
Fundurinn fyrir Suðurland verður haldinn á Hótel Hvolsvelli, miðvikudaginn 21. febrúar kl. 14:00.

Skráning fer fram hér

Drög að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030 voru unnin í víðtæku samráði stjórnvalda við fjölda hagaðila. Þau eru byggð á vinnu sjö starfshópa og stýrihóps og voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember á síðasta ári.

Ferðaþjónustuaðilar og áhugasöm um þróun ferðaþjónustunnar hjartanlega velkomin!

Sjá nánar á ferdamalastefna.is