Rangárþing eystra auglýsir eftir leigutökum til að nýta lóðir innan þjóðlendumarka í Þórsmörk, Goðalandi og við Emstrur(Botnar). Leyfi Rangárþings eystra þarf til að nýta land og landsréttindi á svæðinu, sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlenda og afrétta. Jafnframt þarf samþykki forsætisráðuneytisins þar sem umrædd nýting á að vara lengur en til eins árs, sbr. 2. mgr. 3. Gr. sömu laga.
Skilmálar sem verður litið til við ákvörðun um leyfisveitingu á umræddu svæði eru eftirfarandi en ekki skal litið svo á að röðun þeirra gefi til kynna vægi einstakra skilmála innbyrðis. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum ef það metur umsóknir ekki fullnægjandi og uppfylli ekki markmið sveitarfélagsins fyrir svæðið.
Ferðafélag Íslands og Ferðafélagið Útivist eru nú þegar með rekstur og mannvirki á umræddum lóðum.
Húsadalur 3 – stærð lóðar er 28.877,1 m²
Húsadalur 4 – stærð lóðar er 11.653,1 m²
Langidalur – stærð lóðar er 53.652,5 m²
Slyppugil – stærð lóðar er 5.713 m²
Básar – stærð lóðar er 97.949,3 m²
Emstrur 1 – stærð lóðar er 443 m²
Emstrur 2 – stærð lóðar er 366 m²
Emstrur 3 - stærð lóðar er 511 m²
Emstrur 4 - stærð lóðar er 494 m²
Deiliskipulag er í gildi fyrir ofangreind svæði, sem samþykkt voru 22. júní 2017 fyrir Þórsmörk og Goðaland. Deiliskipulag var samþykkt 7. október 2010 fyrir Emstrur. Lóðir hafa verið stofnaðar á grundvelli deiliskipulags.
Skilmálar sem Rangárþing eystra mun líta til við ákvörðun um úthlutun á umræddum lóðum eru meðal annars eftirfarandi:
Gildandi deiliskipulag er að finna á vefsjá sveitarfélagsins á www.map.is/ranga. Sveitarfélagið hvetur umsækjendur til að kynna sér gildandi deiliskipulag. Upplýsingar um svæðið má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is, og í gegnum netfangið bygg@hvolsvollur.is. Umsóknir skulu berast rafrænt á heimasíðu Rangárþings eystra. Umsóknar eyðublað er að finan hér.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2025. Sé sótt um fleiri en eina lóð skal skila inn umsókn fyrir hverja fyrir sig.
F.h. Rangárþings eystra
Þóra Björg Ragnarsdóttir
Skipulags- og byggingarfulltrúi