Það er mikilvægt að hafa í huga að þótt sumar framkvæmdir séu undanþegnar leyfi þá þarf ávallt að gæta þess að þær séu í sátt við nágranna og í samræmi við skipulag. Eigandi ber sjálfur ábyrgð á að framkvæmd sé örugg og lögmæt.
Lóðarhafar eru hvattir til að kynna sér skilmála deiliskipulags en í sumum tilvikum er fjallað um skjólveggi, t.d. staðsetningu, hæð, útlit og frágang.
Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir á nokkra þætti sem þarf að hafa í huga þegar kemur að skjólveggjum í þéttbýli.
- Skjólveggir og girðingar sem eru allt að 1,8 m að hæð og eru ekki nær lóðarmörkum en 1,8 m. Enn fremur girðingar eða skjólveggir sem eru nær lóðarmörkum en 1,8 m og eru ekki hærri en sem nemur fjarlægðinni að lóðarmörkum. Einnig allt að 2,0 m langir og 2,5 m háir skjólveggir sem eru áfastir við hús og í a.m.k. 1,8 m fjarlægð frá lóðarmörkum. Lóðarhöfum samliggjandi lóða er heimilt án byggingarleyfis að reisa girðingar eða skjólveggi allt að 1,8 m að hæð á lóðarmörkum, enda leggi þeir fram hjá leyfisveitanda undirritað samkomulag þeirra um framkvæmdina. Miðað skal við jarðvegshæð lóðar sem hærri er ef hæðarmunur er á milli lóða á lóðamörkum.
- Á lóðauppdráttum skal tiltekið gera grein fyrir m.a. gróðri, girðingum, sólpöllum og skjólveggjum. Hægt er að skoða uppdrætti á www.map.is/ranga
Lóðarhafar eru hvattir til að kynna sér skilmála deiliskipulags en í sumum tilvikum er fjallað um skjólveggi, t.d. staðsetningu, hæð, útlit og frágang.