340. fundur 11. september 2025 kl. 12:00 - 13:32 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Anton Kári Halldórsson aðalmaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir aðalmaður
  • Árný Hrund Svavarsdóttir aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
  • Sigurmundur Páll Jónsson yfirmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Tómas Birgir Magnússon oddviti setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.
Oddviti óskar eftir að bæta þremur málum á dagsskrá, mál númer 5, 2509036 Tillaga B-lista um breytingu á nefndarskipan skipulagsnefndar, mál nr 6 2509035 Tillaga fulltrúa B-lista - Hjólreiðastígur tenging Rangárþings eystra og Rangárþings ytra og mál nr 7, 2509034 Fyrirspurnir fulltrúa B-lista um framgang framkvæmda skv. fjárfestinga og framkvæmdaáætlun 2025. Aðrir liðir færast eftir því.
Samþykkt með sjö samhjóða atkvæðum.
Í fundarsalnum sitja Anton Kári Halldórsson, Árný Hrund Svavarsdóttir, Sigríður Karólína Viðarsdóttir, Lilja Einarsdóttir, Rafn Bergsson Bjarki Oddsson, oddviti Tómas Birgir Magnússon sem stjórnar fundi. Margrét Jóna Ísólfsdóttir sem ritar fundargerð og Sigurmundur Páll Jónsson sem sér um tækni- og útsendingarmál.

1.Minnisblað sveitarstjóra; 11. september 2025

2509028

Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um helstu verkefni liðinna vikna.
Til máls tóku: AKH og LE.
Lagt fram til kynningar.

2.Skipulags- og byggingarfulltrúi; Umboð til undirritunar á lóðaleigusamninga

1706045

Lögð fram tillaga að veitingu umboðs til Þóru Bjargar Ragnarsdóttur, skipulags- og byggingarfulltrúa til að undirrita lóðarleigusamninga og merkjalýsingar f.h. sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Þóra Björg Ragnarsdóttir, skipulagsfulltrúi hafi fullt umboð til þess að undirrita lóðaleigusamninga og merkjalýsingar f.h. sveitarfélagsins og eftir atvikum aðra samninga sem varða afnot af lóðum og lendum sveitarfélagsins. Fyrri umboð Skipulags- og byggingarfulltrúa eru á dregin til baka.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

3.Skaftárhreppur; Bókun v. bílastæðamála; Ytri-Skógar

2509031

Lögð fram bókun Skaftárhrepps af 522. fundi sveitarstjórnar sem

haldinn var þann 28. ágúst 2025.



2508014 - Málefni Ytri-Skóga

Vegna bókunar Byggðaráðs Rangárþings eystra, þann 21. ágúst 2025, þar sem fjallað var um hækkun tekna vegna bílastæða við Skóga og breytt skipulag við Skógaskóla, samþykkir sveitarstjórn Skaftárhrepps eftirfarandi í einu hljóði:

Sveitarstjórn Skaftárhrepps óskar eftir sundurliðun á kostnaði og tekjum sem Rangárþing eystra hefur bókað í reiknisskilum sínum árin 2024 og 2025, vegna bifreiðastæða við Skógafoss. Er þess óskað að þessi sundurliðun sé unnin af endurskoðanda Rangárþings eystra og send Skaftárhreppi eigi síðar en 15. september næstkomandi.

Sveitarstjórn Skaftárhrepps samþykkir að senda Rangárþingi eystra reikning að upphæð 9.954.000 krónur sem er hlutdeild Skaftárhrepps í þeim 42 milljónum sem Byggðaráð Rangárþings eystra bókaði sem aukið handbært fé vegna afkomu bifreiðastæða á árinu 2025. Jafnframt felur sveitarstjórn Skaftárhrepps, lögmanni sveitarfélagsins

að gæta hagsmuna sveitarfélagsins vegna þeirrar tillögu að breyttu deiliskipulagi við Skógaskóla sem Byggðaráð Rangárþings eystra hefur samþykkt.
Til máls tólku: AKH, BO, LE og TBM.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra bendir Skaftárheppi á samkomulag eigenda Ytri-Skóga frá 12. febrúar 2025, þar sem m.a. kemur fram í 2. gr.
"Eigendur samþykkja með samkomulagi þessu að sveitarstjórn Rangárþings eystra setji gjaldskrá um innheimtu bílastæðagjalda og annist innheimtu þeirra. Tilgangur er í fyrstu að Rangárþing eystra fái tekjur á móti þeim kostnaði sem lagt hefur verið út fyrir. Rangárþing eystra skal halda kostnaði vegna uppbyggingar og reksturs umræddra bílastæða sérgreindum sem og tekjum vegna bílastæðagjalda. Rangárþing eystra skal upplýsa eigendur um fjárhagslega stöðu verkefnisins þegar eftir því er leitað"

Kostnaður Rangárþings eystra vegna ársins 2024 liggur nú þegar fyrir í staðfestum ársreikningi sveitarfélagsins líkt og Skaftárhreppi hefur nú þegar verið bennt á. Varðandi áfallinn kostnað á árinu 2025, þá stendur yfir vinna við greiningu á honum ásamt tekjum. Þegar endanlegt yfirlit liggur fyrir verður það sent á meðeigendur Rangárþings eystra í jörðinni.

Fyrir liggur að áætlaðar tekjur af bílastæðum árið 2025, dugi ekki fyrir nú þegar útlögðum kostnaði áranna 2024-2025. Því mun Rangárþing eystra ekki greiða reikning frá Skaftárhreppi, enda eiga eigendur enn eftir að forma nánara samkomulag varðandi rekstur, uppbyggingu og meðhöndlun tekna af svæðinu.

Varðandi breytingar á deiliskipulagi fyrir jörðina Ytri-Skóga, áréttar sveitarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúi hefur sent umrædda deiliskipulagsbreytingu ásamt öðrum breytingum á svæðinu til meðeigenda Rangárþings eystra að jörðinni þ.á.m. Skaftárhrepp, en engar umsagnir hafa borist.

Ofangreind viðbrögð við bókun Skaftárhrepps samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

4.Rafræn skil úr OneSystems; viljayfirlýsing

2509033

Lögð fram viljayfirlýsing þess efnis að Rangárþing eystra samþykki að hefja vinnu við að koma á rafrænum skilum á skjölum úr OneSystems skjalakerfi sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn fagnar því að komið verði á rafrænum skilum og samþykkir viljayfirlýsingu með sjö samhljóða atkvæðum.

5.Tillaga B-lista um breytingu á nefndarskipan skipulagsnefndar

2509036

Tillagan er um að Rafn Bergsson verði aðalfulltrúi í skipulagsnefnd í stað Bjarka Oddssonar.

Sveitarstjórn samþykkir með sjö samhjlóða atkvæðum, að Rafn Bergsson verði aðalfulltrúi Skipulags- og umhverfisnefndar.

6.Tillaga fulltrúa B-lista - Hjólreiðastígur tenging Rangárþings eystra og Rangárþings ytra

2509035

Tillaga fulltrúa B-lista. Hjólreiðastígur tenging Rangárþings eystra og Rangárþings ytra

Fulltrúar B-lista leggja til að fjárfesting á lagningu hjólreiðastígs út að Eystri Rangá verði sett á fjárfestinga og framkvæmdaáætlun ársins 2026 enda hefur fengist loforð hjá Vegagerðinni fyrir styrk til verkefnisins.

Umrætt styrkloforð fékkst á síðasta kjörtímabili en ekki hefur enn verið hafist handa við lagningu stígsins og verkefninu ýtt aftar á fjárfestingaáætlun ítrekað. Þann 25. maí sl. kom ungmennaráð Rangáþings eystra á fund sveitarstjórnar og kynnti áherslur ungmennaþings sem haldið var sl. vetur og var uppbygging hjólreiðastíga eitt af aðaláherslupunktum þess þings. Lagning stígsins myndi vera gríðarleg viðbót og myndi auka öryggi hjólreiðamanna og göngufólks við nú þegar mikið notaðar göngu og hjólreiðaleiðir, t.d. svokallaðan Sólheimahring, Veiðihúsahring, hring með Eystri Rangá og tenging við Rangárþing ytra. Með lagningu stígsins væri hægt að fara þessar leiðir án þess að þurfa að nýta þjóðveg 1 sem hluta af leiðinni, en það hamlar notkun leiðanna verulega miðað við núverandi umferðarþunga á þjóðvegi 1. Það er okkur fulltrúum B-lista því kappsmál að lagning þessa hjólreiðastígs verði loks að veruleika, íbúum öllum og gestum okkar til hagsbóta, aukinna möguleika til útivistar, hreyfingar og ekki sýst öryggis.

Bjarki Oddsson

Lilja Einarsdóttir

Rafn Bergsson

Til máls tóku: LE og AKH.
Tillaga er um að vísa tillögu fulltrúa B-lista vegna hjólreiðastígs til vinnu við fjárhagsáætlanagerðar fyrir árið 2026 sem þegar er hafin.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Hlé gert á fundi 12:44

7.Fyrirspurnir fulltrúa B-lista um framgang framkvæmda skv. fjárfestinga og framkvæmdaáætlun 2025

2509034

Árið 2024 gekk ekki nægilega vel að framfylgja fjárfestinga og framkvæmdaáætlun sem sveitarstjórn samþykkti. Því spyrjum við nú, hver er staðan á framkvæmdum fjárfestinga ársins 2025 borið saman við áætlun ársins.

Við óskum eftir að lagt verði fram yfirlit, með áætlun og stöðu hvers verkefnis nú áður en vinna við fjárhags og fjárfestingaáætlun ársins 2026 hefst með byggðarráði og sveitarstjórn.

Bjarki Oddson

Lilja Einarsdóttir

Rafn Bergsson

Til máls tólku: LE og AKH.
Sveitarstjórn felur fjármálastjóra að taka saman yfirlit og leggja það fyrir fyrsta vinnufund sveitarstjórnar vegna fjárhagsáætlunar 2026. Einnig verði yfirlitið lagt fram til kynningar á næsta fundi sveitarstjórnar.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Fundur hefst aftur 12:47

8.Aðalskipulag - Ytri-Skógar

2508066

Með aðalskipulagsbreytingunni er verið að breyta íbúðarbyggð, ÍB23 sem er hluti af þéttbýlissvæði Skóga. Verið er að hækka íbúðafjölda úr 5 í 16 íbúðir.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagslýsingin verði send til lögbundinna umsaganaraðila og kynnt skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Hlé gert á fundi 12:58.

9.Aðalskipulag - Seljalandssel

2501025

Við Seljalandssel er fyrirhugað að byggja tveggja hæða hótel úr landi Seljalandssel, L163799. Byggingarmagn hótelsins verður allt að 7.000 m² og hámarks byggingarmagn verður allt að 12 m hátt. Gert er ráð fyrir 120 bílastæðum. Starfsmannahús verða allt að 3.000a m² á einni hæð með allt að 80 íbúðum.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerði athugasemd við framlagða tillögu og bendir á að tillagan er ekki í samræmi við aðalskipulagsbreytingu fyrir svæðið. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila að skipulagssvæðið verði endurskoðað.
Til máls tólku: BO, AKH og LE.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir frekari gögnum um málið.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Fndur hefsta aftur 13:02.

10.Aðalskipulag - Breyting á Þjóðvegi 1 við Steinafjall

2508076

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að gerð verði breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins á legu hringvegarins við Steinafjall undir Eyjafjöllum.
Til máls tólku: BO og AKH.
Sveitarstjórn tekur jákvætt undir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram, í samtali við hagaðila.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Hlé gert á fundi 13:18

11.Deiliskipulag - Kirkjuhvollsreitur, sértækt íbúðarhúsnæði

2505070

Með breytingunni er gert ráð fyrir sértæku íbúðarhúsnæði við Öldubakka og Dalsbakka. Gert er ráð fyrir sex íbúðum og starfsmannaaðstöðu, eða allt að 600 m2 á einni hæð. Hámarksmænishæð er 6,5 m. Viðbyggingarmöguleikar við Heilsugæsluna minnkar um 100 m² og hjúkrunarheimilis minnkar um 750 m² á byggingarreit B1. Byggingarreitur B2 og B3 haldast óbreyttir.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð tillaga verði send til umsagnaraðila og auglýst skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
Til máls tólku: LE, AKH og BO.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir því að fá til umræðu aðrar tillögur sem unnar hafa verið í tengslum við íbúðarkjarna fyrir sjálfstæða búsetu fatlaðra.
Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.
Fundur hefst aftur 13:25

12.Deiliskipulag - Emstrur, Mosar

2309028

Deiliskipulagstillagan tekur til 3 ha svæðis við Emstrur, Mosa sem tilheyrir þjóðlendunni að Emstrur, L233955. Heimilt verður að viðhalda núverandi skála eða endurbyggja, hámarksstærð verður allt að 100 m², 45 m² skálavarðarhúsi með geymslu auk þess að heimilt verður að byggja allt að 30 m² við núverandi hesthús. Gæta skal samræmis í útliti allra bygginga á staðnum. Mannvirki skulu felld að landi eftir því sem hægt er.

Deiliskipulagstillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 15. janúar til og með 27. febrúar 2025. Tillagna var unnin í samráði við Björgunarsveitina Dagrenningu sem gerir ekki athugasemdir við tillöguna. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerir ekki athugasemd ásamt Brunavörnum Rangárvallasýslu og Vegagerðinni. Forsætisráðuneytið bendir á lagabreytingar ásamt því að vatnsréttindi og að leggja rafstrengi er háð samþykki ráðherra. Náttúruverndarstofnun bendir á að svæðið er á náttúruminjaskrá, fjalla þurfi um votlendi og friðaðar plöntur innan svæðisins og nánar um mögulega rafstöð og bílastæði. Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum með nánari umfjöllun í greinargerð en að mati nefndarinnar skal ekki gera ráð fyrir bílastæðum en bílum skuli lagt innan byggingarreits til að halda nær umhverfinu sem mestu óbreyttu. Nefndin fer fram á að ekki verði sýndur hjóla- og göngustígur í deiliskipulaginu og afmörkunin fjarlægð af uppdrættinum.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunnar til yfirferðar og afgreidd skv. 42 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

13.Deiliskipulag - Vindás og Litli-Moshvoll

2505086

Tillagan tekur til fimm frístundalóða úr landeignunum Litla-Moshvoll og Vindás. Heimilt verður að byggja allt að 300 m² eða eitt frístundarhús, gestahús, geymslu og gróðurhús. Mænishæð er frjáls en skal vera sú sama á hverri lóð en hámarkshæð húsa er 5,5 m.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu og send til umsagnaraðila skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

14.Deiliskipulag - Bergþórugerði, fjölgun parhúsa

2508036

Með deiliskipulagsbreytingunni er verið að fjölga par- og raðhúsum í Begþórugerði, ÍB9.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að breyting á deiliskipulagstilögu verði send til umsagnaraðila og auglýst skv. skipulagslögum nr. 123/2010.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

15.Byggðarráð - 281

2506003F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 281. fundar Byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

16.Byggðarráð - 282

2506004F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 282. fundar Byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

17.Byggðarráð - 283

2507002F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 283. fundar Byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

18.Byggðarráð - 284

2507006F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 284. fundar Byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Byggðarráð - 284 Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Byggðarráð - 284 Erindið var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisnefndar þann 6. ágúst 2025 og eftirfarandi bókað:
    Fyrirhuguð byggingaráform á Steinum hafa verið í lögbundnu skipulags- og matsferli.

    Varðandi fyrirspurn um vindmyllugarð er vísað til skilmála aðalskipulags Rangárþings eystra. Vindmyllugarður líkt og aðrar framkvæmdir þurfa að vera í samræmi við skipulag og því er nauðsynlegt að leggja fram frekari gögn varðandi fyrirhugaða framkvæmd áður en hægt er að taka afstöðu til fyrirspurnarinnar og hefja mögulegt skipulags- og matsferli.

    Byggðarráð tekur undir og staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Byggðarráð - 284 Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Byggðarráð - 284 Byggðarráð hafnar uppfærðri framkvæmdaáætlun. Byggðarráð felur lögfræðingi sveitarfélagsins að fylgja málinu eftir með það að markmiði að rifta samkomulagi milli aðila um uppbyggingu miðbæjarins.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Byggðarráð - 284 Byggðarráð samþykkir ný gerða málstefnu fyrir Rangárþing eystra. Byggðarráð þakkar þeim sem komu að gerð stefnunnar fyrir vel unnin störf.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Byggðarráð - 284 Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
  • Byggðarráð - 284 Byggðarráð þakkar fyrir umsóknina og vísar henni til Markaðs- og menningarnefnar sem mun á næstunni hefja úthlutunarferli úr menningasjóð sveitarfélagsins.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Byggðarráð - 284 Byggðarráð sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðni að svo stöddu.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Byggðarráð - 284 Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • 18.10 2507075 Trúnaðarmál
    Byggðarráð - 284 Bókun færð í trúnaðarmálabók.
  • Byggðarráð - 284 Alls bárust umsóknir um lóðirnar frá fjórum aðilum.

    Ferðafélag Íslands sækir um auglýstar lóðir á Emstrum, Húsadal og í Langadal.
    Ferðafélagið Útivist sækir um auglýsta lóð í Básum.
    Bandalag Íslenskra farfugla sækir um auglýsta lóð í Slyppugili.
    Ferðaskrifstofa Icelandia ehf. sækir um auglýstar lóðir í Langadal, Básum, Slyppugili og Emstrum.

    Lokið hefur verið við yfirferð umsókna og samþykkir byggðarráð eftirfarandi:

    Byggðarráð samþykkir að ganga til samninga við Ferðafélag Íslands um lóðir í Húsadal, Langadal og á Emstrum.

    Byggðarráð samþykkir að ganga til samninga við Ferðafélagið Útivist um lóð í Básum.

    Byggðarráð samþykkir að ganga til samninga við Bandalag Íslenskra farfugla um lóð í Slyppugili.

    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Byggðarráð - 284 Lagt fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 284 Lagt fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 284 Lagt fram til kynningar.

19.Byggðarráð - 285

2508003F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 285. fundar Byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

20.Byggðarráð - 286

2508006F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 286. fundar Byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Byggðarráð - 286 Byggðarráð samþykkir með þremur samhjóða atkvæðum að Anton Kári Halldórsson, Tómas Birgir Magnússon og Lilja Einarsdóttir verði skipuð í nýjan vinnuhóp vegna samninga um Hamragarða og Seljalandsfoss. Til vara verði Árný Hrund Svavarsdóttir, Christiane L Bahner og Bjarki Oddsson.

21.Byggðarráð - 287

2508010F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 287. fundar Byggðarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

Fundi slitið - kl. 13:32.