281. fundur 19. júní 2025 kl. 08:15 - 09:13 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir Gestur
    Aðalmaður: Bjarki Oddsson
Starfsmenn
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.

1.Fossbúð félagsheimili - samningur um rekstur - 10.06.2025

2506034

Lagður fram til samþykktar samningur Rangárþings eystra, Leikfélags Austur-Eyfellinga, Ungmennafélagsins Eyfellings og Kvennfélagsins Fjallkonunnar um rekstur á félagsheimilinu Fossbúð.
Byggðarráð samþykkir með þremur samhjóða atkvæðum samningu um rekstur á félagsheimilinu Fossbúð.

2.Umsögn um tækifærisleyfi - dansleikur félags eldri borgara Gunnarshólma 26.06.2025

2506032

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um tækifærisleyfi vegna dansleiks félags eldri borgara í Gunnarhólma.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

3.Umsögn um rekstarleyfi - Hótel Lóa - Austurvegur 19 - 03.06.2025

2506016

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokkii IV A, Hótel að Austurvegi 19, Hvolsvelli.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

4.Skipulags- og umhverfisnefnd - 67

2505001F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 67. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 67 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við uppsetningu bæjar- og staðvísaskilta. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að óska eftir umsögn Vegagerðarinn varðandi auglýsingarskilti.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 67 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu en leggur til að gerð verði mön eða skjólbelti umhverfis svæðið til að bæta umhverfi og ásýnd.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 67 Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins, nefndin hefur lagt til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 67 Aðalskipulagslýsingin var send til lögbundinna umsagnaraðila og kynnt frá 14. mars til og með 4. apríl 2025. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem benti á misræmi í gögnum, bent var á að taka skyldi mið af umfangi og fyrirhugaðri starfsemi vegna fráveitu ásamt því að gera athugasemd við framlagðan núllkost í umhverfismatsskýrslu. Að mati Náttúruverndarstofnunar getur tillagan haft neikvæð áhrif á landslag og leggur til að sett verði skýr skilyrði til að draga úr neikvæðum áhrifum. Vegagerðin bendir á að allar tengingar við þjóðvegi séu háðar þeirra leyfi, óskar eftir að samgöngumat verði unnið fyrir svæðið ásamt því að benda á að taka tillit til hættu vegna flóða í farvegi Markarfljóts. Skipulagsstofnun bendir m.a. á að gera þurfi grein fyrir forsendum þess að skilgreina ný svæði fyrir ferðaþjónustu t.d. með því að taka saman fjölda gistirýma á svæðinu. Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum í aðalskipulagsbreytingunni, t.d. með því að gera grein fyrir áhrifum á landslag, forsendum uppbyggingar og fjallað ítarlegar um 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagslýsingin verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar fyrir auglýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur einnig til að aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagstillaga verði auglýst samhliða ásamt að fara fram á að samgöngumat fyrir svæðið, frá Markarfljóti til og með Sandhólmavegi verði unnið samhliða deiliskipulagstillögunni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 67 Aðalskipulagslýsingin var send til lögbundinna umsagnaraðila og kynnt frá 14. mars til og með 4. apríl 2025. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem benti á misræmi í gögnum, bent var á að taka skyldi mið af umfangi og fyrirhugaðri starfsemi vegna fráveitu ásamt því að gera athugasemd við framlagðan núllkost í umhverfismatsskýrslu. Að mati Náttúruverndarstofnunar getur tillagan haft neikvæð áhrif á landslag og leggur til að sett verði skýr skilyrði til að draga úr neikvæðum áhrifum. Vegagerðin bendir á að allar tengingar við þjóðvegi séu háðar þeirra leyfi, óskar eftir að samgöngumat verði unnið fyrir svæðið ásamt því að benda á að taka tillit til hættu vegna flóða í farvegi Markarfljóts. Skipulagsstofnun bendir m.a. á að gera þurfi grein fyrir forsendum þess að skilgreina ný svæði fyrir ferðaþjónustu t.d. með því að taka saman fjölda gistirýma á svæðinu.
    Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum í aðalskipulagsbreytingunni, t.d. með því að gera grein fyrir áhrifum á landslag, forsendum uppbyggingar og fjallað ítarlegar um 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Landeigandi að Syðri-Rotum gerir athugasemdir við framlagða lýsingu, uppbyggingin muni rýra þeirra hagsmuni ásamt stóru umfangi tillögunnar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagslýsingin verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar fyrir auglýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur einnig til að aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagstillaga verði auglýst samhliða ásamt að fara fram á að samgöngumat fyrir svæðið, frá Markarfljóti til og með Sandhólmavegi verði unnið samhliða deiliskipulagstillögunni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 67

5.Skipulags- og umhverfisnefnd - 68

2505008F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 68. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

6.Skipulags- og umhverfisnefnd - 69

2505014F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 69. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins vegna ófullnægjandi merkjalýsingar.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsgerð verði heimiluð.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð tillaga verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 23/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð deiliskipulagsbreyting verði auglýst skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 15. apríl til og með 30. apríl 2025. Náttúruverndarstofnun og Brunavörnum Rangárvallasýslu sem gera ekki athugasemdir. Vegagerðin gerir athugasemd við vegtengingu sem brugðist hefur verið við. Fjallað hefur verið nánar um vatnsból og fráveitu með vísan í umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórnar að tillagan verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Deiliskipulagið var auglýst og sent til umsagnaraðila frá 6. ágúst 2024 með athugasemdafrest til og með 27. september 2024. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, sem bendir á að notast skuli við sameiginlegt hreinsivirki fyrir gestahúsin. Nú þegar hafa verið byggð tvö gestahús skv. gildandi skipulagi en með breytingunni er farið fram á að samnýta rotþró fyrir komandi uppbyggingu. Vegagerðin benti á að núverandi vegtenging sé ekki samþykkt og staðsetningin sé óheppileg. Skipulags- og byggingarfulltrúa var falið að vinna málið áfram og í samráði við landeigenda og Vegagerðina. Með uppfærðri tillögu hefur vegtengin verið færð vestar til að bæta sýn ökumanna.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við að lóðafjöldi fari úr sjö yfir í 9 en stærð skipulagssvæðisins er óbreyttur eða 12 ha. Litli-Moshvoll Hólar, L164261 og Sunnutún, L164262 eru hluti af svæðinu.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69 Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins og gerir athugasemd við framlagða teikningu. Í aðalskipulagi sveitarfélagsins kemur fram að frístundarsvæðið er 10 ha en í tillögunni kemur fram að skipulagssvæðið sé 31,7 ha. Fjalla þarf nánar um skráðar fornminjar innan svæðisins. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að farið verði fram á samgöngumat fyrir svæðið, frá Markarfljóti til og með Sandhólmavegi og að það verði unnið samhliða deiliskipulagstillögunni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 69

7.Markaðs- og menningarnefnd - 28

2505013F

Lögð fram til umræðu og samþykkar fundargerð 28. fundar Markaðs- og menningarnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

8.Ungmennaráð - 42

2505009F

Lögð fram til umræðu og samþykkar fundargerð 42. fundar Ungmennaráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • 8.1 2411011 Ungmennaþing 2024
    Ungmennaráð - 42 Ungmennaráð fór yfir niðurstöður ungmennaþings og sköpuðust miklar umræður um það. Sveitarstjórn þakkaði ungmennaráði fyrir.
    Einnig var um nikótínotkun ungmenna, Hinseiginleikan hjá ungmennum, Kjötsúpuhátíðina, Vinnuskólan, Gangstéttir, Körfuboltavöllur, Gervigrasvöllur, Kosningaaldur,
  • Ungmennaráð - 42

9.Fjölskyldunefnd - 25

2505005F

Lögð fram til umræðu og samþykkar fundargerð 25. fundar Fjölskyldunefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

10.Samband íslenskra sveitarfélaga; 980. fundur stjórnar - 27.05.2026

2506017

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 980. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.Félags- og skólaþjónusta - aðalfundur - ársreikningur

2506036

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð aðalfundar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Austur Skaftarfellssýlsu.

Lagður fram til staðfestingar ársreikningur Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Austur Skaftarfellssýlsu.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti ársreikning 2024.

12.Félags- og skólaþjónusta - 91. fundur - ársskýrsla

2506035

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 91. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Austur Skaftarfellssýlsu.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

13.Erindi Félags atvinnurekanda til sveitarstjórna vegna fasteignaskatts - 10.06.2025

2506033

Lagt fram erindi atvinnurekanda til sveitarstjórna vegna fasteignaskatts.
Lagt fram til kynningar.

14.Skipulag skógræktar

2506024

Lagt fram bréf Vina íslenskrar náttúru um skipulag skógræktar, leiðbeiningar um val á landi til skógræktar.
Byggðarráð leggur til að erindið verði sett til kynningar í Skipulags- og umhverfisnefnd.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:13.