285. fundur 21. ágúst 2025 kl. 08:15 - 09:48 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Lilja Einarsdóttir
    Aðalmaður: Bjarki Oddsson
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð ef einhverjar eru.

1.Arnardrangur hses; Ósk um samstarf við byggingu búsetuúrræðis

2405056

Lagðar eru fram þrjár tillögur fyrir staðsetningu á nýjum íbúðarkjarna fyrir sjálfstæða búsetu fatlaðra. Íbúðarkjarni er ætlaður fyrir sex íbúðir ásamt setustofu og í um 600 m² byggingu. Gert er ráð fyrir útisvæði við hverja íbúð.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að gerð verði breyting á deiliskipulagi fyrir Kirkjuhvoll þar sem gert verður ráð fyrir íbúðarkjarna fyrir fatlaða.

Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi fyrir Kirkjuhvolsreitinn þar sem gert verði ráð fyrir sértæku búsetuúrræði fyrir fatlaða. Byggðarráð leggur til að unnin verði fleiri en ein tillaga að staðsetningu innan Kirkjuhvolsreitsins.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

2.Njálsbúð; Skólahúsnæði; Lok leigusamnings

2507021

Á 283. fundi byggðarráðs var lagt til að gerð yrði ástandsúttekt á skólahluta Njálsbúðar, áður en ákvörðun um áframhaldandi leigu yrði tekin. Fyrir fundi liggur ástandsskoðun unnin af fostöðumanni fasteigna og Skipulags- og byggingarfulltrúa.
Byggðarráð þakkar fyrir vel unna ástandsúttekt. Byggðarráð samþykkir þá tillögu sem þar kemur fram varðandi það að auglýsa skólahluta húsnæðisins ekki lausan til leigu, fyrr en að ráðist hefur verið í nauðsynlegar viðhaldsframkvæmdir. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta gera kostnaðargreiningu á nauðsynlegum viðhaldsframkvæmdum og vísar ákvörðun um viðhaldsframkvæmdir til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

3.Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2025

2508039

Lagður fram viðauki við fjáhagsáætlun 2025.

Viðaukinn hljóðar upp á hækkun tekna, vegna bílastæða við Skóga að upphæð 150.000.000 kr og kostað vegna bílastæða við Skógafoss að upphæð 108.000.000 kr.

Handbær fé hækka um 42.000.000.
Byggðarráð samþykkir viðauka 2 með þremur samhljóða atkvæðum.

4.Ósk um breytt staðfang - Tunga lóð

2507069

Óskað er eftir að breyttu staðfangi að Tungu lóð, L211886, verði breytt í Tunga I. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingu á staðfangi við Tungu lóð verði breytt í Tunga I.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir hið nýja staðfang. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

5.Ósk um breytt staðfang - Hvassafell

2506026

Óskað er eftir breyttu staðfangi að Hvassafelli, L163670, verði breytt í Steinar 5.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfang landeignarinnar Hvassafell verði breytt í Steinar 5. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að leggja fram drög að breyttu staðfangi aðliggjandi landeigna.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir hið nýja staðfang. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

6.Ósk um breytt staðfang - Fagrahlíð

2506027

Óskað er eftir að breyttu staðfangi við Fögruhlíð, L164004 verði breytt í Fagratún 1. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfang landeignarinnar Fagrahlíð, L164004 verði breytt í Fagratún.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir hið nýja staðfang. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

7.Merkjalýsing - Hellishólar

2507068

Óskað er eftir að stofna spildu úr jörðinni Hellishólar, L164018. Hin nýja landeign verður 72,2 ha að stærð og lagt er til staðfangið Hellistún.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir landskiptin ásamt hinu nýja staðfangi. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

8.Merkjalýsing - Lækjarhvammur, ný landeign

2507054

Óskað er eftir að stofna spildu úr jörðinni Lækjarhvammur, L163882. Hin nýja spilda verður 54,7 ha að stærð og lagt er til staðfangið Lækjarhvammur 2.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir landskiptin ásamt hinu nýja staðfangi. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

9.Deiliskipulag - Bólstaður

2309030

Deiliskipulagstillagan tekur til 3,5 ha svæðis við Bólstað sem tilheyrir þjóðlendunni að Fljótshlóðarafrétt, L233962. Heimilt verður að viðhalda núverandi skála eða endurbyggja, hámarksstærð verður allt að 120 m² með geymslu auk þess að heimilt verður að byggja umhverfis rafstöð. Mænishæð og þakform er frjálst.

Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 15. janúar til og með 27. febrúar 2025. Tillagan var einnig send á Forsætisráðuneytið til umsagnar þar sem svæðið er innan þjóðlendu. Brunavarnir Rangárvallasýslu og Vegagerðin gera ekki athugasemdir. Minjastofnun skilaði ekki inn umsögn en Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bendir á misræmi í gögnum ásamt því að ekki verði heimilt að veita regnvatni í hreinsivirki. Náttúruverndarstofnun bendir á að svæðið er á náttúruminjaskrá og leggja til að fjalla um áhrif tillögunnar á ásýnd svæðisins. Stofnunin fjallar einnig um friðaðar plöntur innan svæðisins, vilja að skilyrði um litaval komi fram og hæð rafstöðvar. Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum en litaval á fjallaskálanum verður óbreytt þar sem það hefur menningarlegt gildi fyrir gamla Fljótshlíðarhrepp. Fjallaskálinn er í eigu Fjallskilanefndar en tillagan hefur verið unnin í samráði við eigendur skálans. Forsætisráðuneytið bendir á lagabreytingu um kolefnisbindingu. Vatnsbólið er frá ca. 1970 en haft verður áframhaldandi samráð við ráðuneytið varðandi frekari leyfisveitingar. Fjallaskálinn er notaður sem gangamannaskáli fyrir leitarmenn og ekki stendur til að hann fari í rekstur. Stækkunarmöguleikar eru fyrir betri aðstæður fyrir leitar- og heimamenn. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslögum nr. 123/2010.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

10.Deiliskipulag - Ytri-Skógar, Hérðasskólinn

2501070

Deiliskipulagsbreytingin tekur til Skólavegs 1, L163674 þar sem áður var héraðsskóli Skóga. Með breytingunni er gert ráð að hámarks byggingarmagn á lóðinni verði 8.700 m² og allt að þremur hæðum. Gert er ráð fyrir 78 bílastæðum.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

11.Deiliskipulag - Ytra-Seljaland, heiði

2406007

Deiliskipulagstillagan tekur til 9 frístundalóða úr landi Ytra-Seljalands, L163773 eða á 10 ha svæðis. Heimilt verður að byggja sumarhús með geymslu eða allt að 230 m².

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að samgöngumat fyrir svæðið verði unnið af sveitarfélaginu í samráði við Vegagerðina. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en samgöngumat skal liggja fyrir áður en að fjallað verði aftur um tillöguna.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

12.Deiliskipulag - Steinar 1

2304020

Deiliskipulagstillagan tekur til 127,4 a svæðiðs við Hvassafell II og Steina 1. Gert er ráð fyrir 100 gistiskála í 4-5 húsa klösum, 200 herbergja hótel við við Þjóðveg 1, 120 herbergja hótel sunnar á svæðinu ásamt baðlóni. Einnig er gert ráð fyrir 15 starfsmannaíbúðum og fjölorkustöð. Heildar byggingarmagn er fyrir svæðið er 35.610 m² en hámarkshæð húsa fer frá 5 til 9 m. Aðkomuleiðum hefur verið breytt frá fyrri tillögu.

Deiliskipulagstillaga að Steinum var auglýst og kynnt í tvígang, fyrst var tillagan auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu frá 18. september með athugasemdarfrest til og með 31. október 2024. Athugasemdir bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum og eru eftirfarandi; Vegagerðin benti á að tillagan hafi áhrif á áform um framtíðarlegu þjóðvegarins, Veðurstofa Íslands gerði athugasemdir við að hættumat liggi ekki fyrir vegna ofanflóðs og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerði m.a. athugasemdir um fráveitu, staðsetningu vatnsbóls og að kanna þurfi jarðveg vegna mögulegar mengunar. Umhverfisstofnun benti á að framkvæmdin væri háð mati á umhverfisáhrifum, m.a. vegna fuglalífs og vistgerða á svæðinu. Umhverfisstofnun bendir einnig á að fráveitumál væru óljós. Landeigandi óskaði eftir að tillagan yrði auglýst á ný þar sem m.a. er gert ráð fyrir að þjóðvegurinn færist sunnar og gestahúsum fækkað. Uppfærð tillaga var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 14. apríl með athugasemdarfrest til og með 30. maí 2025. Náttúruverndarstofnun endurtók meira og minna fyrri umsögn ásamt Veðurstofu Íslands. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerði athugasemd við óskýrleika vegna vatnsöflunar og að áætlaður fjöldi íbúa og gesta komi ekki fram. Vegagerðin hafnar framlagðri tillögu og óskar eftir samráði. Fjöldi athugasemd barst í gegnum Skipulagsgáttina og til skipulags- og byggingarfulltrúa þar sem m.a. eru gerðar athugasemdir vegna ásýndar, fuglalífs, gróðurfars og að innviðir á svæðinu beri ekki áformin. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að hafna framlagðri tillögu í ljósi fjölda og alvarleika athugasemda, neikvæðra umsagna lögbundinna stofnanna og að niðurstaða umhverfismats liggi ekki fyrir.
Byggðarráð staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og hafnar framlagðri tillögu í ljósi fjölda og alvarleika athugasemda, neikvæðra umsagna lögbundinna stofnana og að niðurstaða umhverfismats liggi ekki fyrir. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

13.Umsögn um gistileyfi - Koltursey - Bertha María Waagfjörð - 08.08.2025

2508018

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs í flokki II-H, Kotursey.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

14.Umsögn um gistileyfi - Skeggjastaðir lóð 18- G.K. Bílaréttingar ehf. - 31.07.2025

2507072

Sýslumaðurinn á suðurlandi óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs í flokki II-G, Skeggjastaðir lóð 18.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

15.Fjallskilanefnd Fljótshlíðar; Gróðurskoðunarferð 30.05.25

2508005

Lögð fram til kynningar fundargerð gróðurskoðunarferðar Fjallskilanefndar Fljótshlíðar.
Lagt fram til kynningar.

16.Fjallskilanefnd Fljótshlíðar; 62. fundur 30.07.25

2508004

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 62. fundar Fjallskilanefnd Fljótshlíðar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

17.Skipulags- og umhverfisnefnd - 70

2507003F

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 70. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir umsögn Vegagerðarinnar og Náttúruverndarstofnun fyrir umræddu skilti.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir tillögum landeigenda að breyttu staðfangi fyrir landeignirnar Völlur 1, L164206, Völlur 1, L164401, Völlur 2, L164207, Völlur lóð, L16232 og Völlur 2 land, L176703 með vísan í handbækur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um skráningu staðfanga.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að breytingu á staðfangi við Tungu lóð verði breytt í Tunga I.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfang landeignarinnar Hvassafell verði breytt í Steinar 5. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að leggja fram drög að breyttu staðfangi aðliggjandi landeigna.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfang landeignarinnar Fagrahlíð, L164004 verði breytt í Fagratún.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að þau verði samþykkt ásamt nýju staðfangi.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Talsverðar umræður um uppbyggingu starfsmannahúsnæðis í sveitarfélaginu áttu sér stað. Skipulags- og umhverfisnefnd vísar ákvörðun um uppbyggingu starfsmannahúsnæðis í tenglsum við uppbyggingu á hóteli við Seljalandssel til deiliskipulagsgerðar.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Breytinga á sveitarfélagsmörkum voru grenndarkynnt fyrir aðliggjandi landeigendum þar sem ábending barst frá landeigenda. Brugðist hefur verið ábendingunni með að hliðra mörkunum lítillega til suðurs milli Móeiðarhvols og Stóra Ármóts eftir uppfærðri loftmynd. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að sveitarfélagsmörk eru ekki eignamyndandi varðandi landamerki.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlögð sveitarfélagsmörk verði samþykkt.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 19. maí til og með 30. júní 2025. Umsagnir bárust frá Mílu og Veitum, lagnir í þeirra eigu liggja innan svæðisins. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Brunavarnir Rangárvallasýslu og Rarik gera ekki athugasemdir við tillöguna. Vegagerðin bendir á að málsetningu milli vegtenginga vantar á uppdrætti ásamt því að benda á að með frekari uppbyggingu á svæðinu gæti þurft að breyt skilgreiningu Móeiðarhvolsvegar úr héraðsvegi og að frekari vegtengingar verða ekki heimilaðar. Brugðist hefur verið við athugasemdum Vegagerðarinnar með því að fjalla um ábendingarnar í deiliskipulagstillögunni ásamt því að fjalla um lagnir veitufyrirtækjanna.
    Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með athugasemd Vegagerðarinnar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að leggja fram uppfærðan uppdrátt þar sem vegteningar eru samnýttar.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 15. janúar til og með 27. febrúar 2025. Tillagan var einnig send á Forsætisráðuneytið til umsagnar þar sem svæðið er innan þjóðlendu. Brunavarnir Rangárvallasýslu og Vegagerðin gera ekki athugasemdir. Minjastofnun skilaði ekki inn umsögn en Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bendir á misræmi í gögnum ásamt því að ekki verði heimilt að veita regnvatni í hreinsivirki. Náttúruverndarstofnun bendir á að svæðið er á náttúruminjaskrá og leggja til að fjalla um áhrif tillögunnar á ásýnd svæðisins. Stofnunin fjallar einnig um friðaðar plöntur innan svæðisins, vilja að skilyrði um litaval komi fram og hæð rafstöðvar. Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum en litaval á fjallaskálanum verður óbreytt þar sem það hefur menningarlegt gildi fyrir gamla Fljótshlíðarhrepp. Fjallaskálinn er í eigu Fjallskilanefndar en tillagan hefur verið unnin í samráði við eigendur skálans. Forsætisráðuneytið bendir á lagabreytingu um kolefnisbindingu. Vatnsbólið er frá ca. 1970 en haft verður áframhaldandi samráð við ráðuneytið varðandi frekari leyfisveitingar.
    Fjallaskálinn er notaður sem gangamannaskáli fyrir leitarmenn og ekki stendur til að hann fari í rekstur. Stækkunarmöguleikar eru fyrir betri aðstæður fyrir leitar- og heimamenn.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 42. gr. skipulagslögum nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að samgöngumat fyrir svæðið verði unnið af sveitarfélaginu í samráði við Vegagerðina.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en samgöngumat skal liggja fyrir áður en að fjallað verði aftur um tillöguna.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Deiliskipulagstillaga að Steinum var auglýst og kynnt í tvígang, fyrst var tillagan auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu frá 18. september með athugasemdarfrest til og með 31. október 2024. Athugasemdir bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum og eru eftirfarandi; Vegagerðin benti á að tillagan hafi áhrif á áform um framtíðarlegu þjóðvegarins, Veðurstofa Íslands gerði athugasemdir við að hættumat liggi ekki fyrir vegna ofanflóðs og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerði m.a. athugasemdir um fráveitu, staðsetningu vatnsbóls og að kanna þurfi jarðveg vegna mögulegar mengunar. Umhverfisstofnun benti á að framkvæmdin væri háð mati á umhverfisáhrifum, m.a. vegna fuglalífs og vistgerða á svæðinu. Umhverfisstofnun bendir einnig á að fráveitumál væru óljós.
    Landeigandi óskaði eftir að tillagan yrði auglýst á ný þar sem m.a. er gert ráð fyrir að þjóðvegurinn færist sunnar og gestahúsum fækkað. Uppfærð tillaga var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 14. apríl með athugasemdarfrest til og með 30. maí 2025. Náttúruverndarstofnun endurtók meira og minna fyrri umsögn ásamt Veðurstofu Íslands. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerði athugasemd við óskýrleika vegna vatnsöflunar og að áætlaður fjöldi íbúa og gesta komi ekki fram. Vegagerðin hafnar framlagðri tillögu og óskar eftir samráði.
    Fjöldi athugasemd barst í gegnum Skipulagsgáttina og til skipulags- og byggingarfulltrúa þar sem m.a. eru gerðar athugasemdir vegna ásýndar, fuglalífs, gróðurfars og að innviðir á svæðinu beri ekki áformin.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að hafna framlagðri tillögu í ljósi fjölda og alvarleika athugasemda, neikvæðra umsagna lögbundinna stofnanna og að niðurstaða umhverfismats liggi ekki fyrir.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Fyrirhuguð byggingaráform á Steinum hafa verið í lögbundnu skipulags- og matsferli.

    Varðandi fyrirspurn um vindmyllugarð er vísað til skilmála aðalskipulags Rangárþings eystra. Vindmyllugarður líkt og aðrar framkvæmdir þurfa að vera í samræmi við skipulag og því er nauðsynlegt að leggja fram frekari gögn varðandi fyrirhugaða framkvæmd áður en hægt er að taka afstöðu til fyrirspurnarinnar og hefja mögulegt skipulags- og matsferli.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að gerð verði breyting á deiliskipulagi fyrir Kirkjuhvoll þar sem gert verður ráð fyrir íbúðarkjarna fyrir fatlaða.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd fellur frá grenndarkynningu og gerir ekki athugasemd við að rekstrarleyfi verði veitt.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 70 Skipulags- og umhverfisnefnd hafnar tillögunni af öryggisástæðum.

18.Markaðs- og menningarnefnd - 29

2507005F

Lögð fram til staðfestingar fundargerð 29. fundar Markaðs- og menningarnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 29
  • Markaðs- og menningarnefnd - 29 Farið var yfir tillögur sem bárust og þakkar nefndin fyrir þær. Markaðs- og menningarnefnd felur markaðs- og kynningarfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 29 Farið var yfir tilnefningar sem bárust og þakkar nefndin fyrir þær. Nefndin komst að niðurstöðu sem tilkynnt verður á laugardagsskemmtun á Kjötsúpuhátíð 2025.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 29 Farið var yfir tilnefningar sem bárust og þakkar nefndin fyrir þær. Nefndin komst að niðurstöðu sem tilkynnt verður á laugardagsskemmtun á Kjötsúpuhátíð 2025.

19.Stjórn Njálurefils; Fundargerð 18. fundar stjórnar

2508029

Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar stjórnar Njálurefils.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

20.Stjórn Njálurefils; Fundargerð 19. fundar stjórnar

2508030

Lögð fram til kynningar fundargerð 19. fundar stjórnar Njálurefils.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

21.Stjórn Njálurefils; Fundargerð 20. fundar stjórnar 31.07.2025

2508021

Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar stjórnar Njálurefils.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

22.Fjárhagsáætlun 2026 - 2029; skipulag vinnufunda

2508038

Lögð fram til kynningar drög að skipulagi vinnufunda vegna vinnu við fjárhagsáæltun.
Lagt fram til kynningar.
Byggðarráð óskar eftir að tekin verði saman listi, um þau mál sem vísað hefur verið til vinnu við fjárhagsáæltun á árinu 2025.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

23.Forsendur fjárhagsáætlunar 2026 - 2029

2508037

Lagðar fram til kynningar hagrænar forsendur fjárhagsáæltunar 2026-2029.
Lagt fram til kynningar.

24.Aðalfundur Vottunarstofunnar Túns ehf 2025; Fundarboð

2508035

Lagt fram fundarboð aðalfundar Vottunarstofunnar Túns.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:48.