276. fundur 03. apríl 2025 kl. 08:15 - 09:24 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Árný Hrund Svavarsdóttir Formaður byggðarráðs
Dagskrá
Formaður byggðarráð setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.
Formaður byggðarráðs óskar eftir að bæta einu máli á dagsskrá mál nr. 7 2410037 Umsókn um vilyrði fyrir lóð í Bergþórugerði. Önnur mál færast eftir því.
Samþykkt með þremur samhjóða atkvæðum.

1.Landsbyggðin lifi - leitað eftir samstarfi

2503014

Samtökin Landsbyggðin lifi leita eftir samstarfi við sveitafélög í dreifbýli vegna þátttöku samtakanna í samstarfsverkefninu „Coming, Staying, Living ? Ruralizing Europe“. Verkefnið leitast við að efla byggð í dreifbýli og smærri samfélögum með áherslu á grunnþjónustu, sjálfbærni og samfélagsþol.
Byggðarráð vísar erindinu til byggðarrþórunarfulltrúa til nánari skoðunar.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

2.Trúnaðarmál

2503042

Bókun færð í trúnaðarmálabók.

3.Consello; útboð á tryggingum 2025

2503055

Lagt fram tilboð Consello í vinnu við útboð á tryggingum.
Byggðarráð samþykkir með þremur samhljóða atkvæðum tilboð í útboð á tryggingum.

4.Beiðni um samstarf við samræmda úttekt vatnsveitna á Íslandi

2503059

Brunavarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), Félag slökkviliðsstjóra á Íslandi (FSÍ) ásamt Fagráði vatnsveitna SAMORKU, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi hafa hafið samstarf er varðar samræmda úttekt á slökkvivatni vatnsveitna á Íslandi. Óskað er eftir samtarfi við sveitarfélagið.
Byggðarráð samþykkir að farið verði í úttekt á slökkvivatni vatnsveitna í sveitarfélaginu og felur slökkviliðsstjóra og umsjónamanni fasteigna að vinna að málinu.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

5.Sveitarfélag ársins - könnun Gallup

2503091

Lagt fram bréf þar sem óskað er eftir þátttöku sveitarfélagins í könnuninn Sveitarfélag ársins.
Byggðarráð hafnar þátttöku í könnuninni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

6.The Rift fjallahjólakeppnin 2025

2503060

The Rift reiðhjólakeppnin verður haldin þann 19. júlí nk. með upphaf og endamark á Hvolsvelli. Undirbúningsnefnd keppninnar óskar eftir leyfi frá sveitarfélaginu til bráðabirgðalokana á vegum sbr. fylgiskjölum.
Byggðarráð Rangárþings eystra gerir ekki athugasemdir fyrir sitt leiti við keppnishald og bráðabirgðalokanir á vegum enda vara lokanir ekki lengur en þarf vegna keppninnar. Byggðarráð lýsir yfir ánægju sinni með að svo stór íþróttaviðburður sé haldið í sveitarfélaginu og óskar keppnishöldurum og keppendum góðs gengis. Byggðarráð samþykkir að veita keppendinum frían aðgang í sund á meðan á keppni stendur.
Byggðarráð leggur til við Markaðs- og menningarnefnd að koma með tillögur að viðburðum í sveitarfélaginu í kringum keppnina.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

7.Umsókn um vilyrði fyrir lóð í Bergþórugerði

2410037

Manntaks ehf. óskar eftir að Byggðarráð Rangárþings eystra veiti Manntaki lóðarvilyrði við Bergþórugerði á reit ÍB9.
Byggðarráð hafnar umsókn um lóðarvilyrði í Bergþórugerði.
Gatnagerð í Bergþórugerði hefst í sumar og verða lóðir auglýstar lausar til úthlutunar í framhaldinu. Byggðarráð hvetur Manntak sem og aðra áhugasama til að sækja um.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

8.Umsögn um rekstrarleyfi - Varmahlíð - 24.03.2025

2503079

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðir í flokki II að Varmahlíð.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

9.Umsögn vegna gistileyfi - Dílaflöt - 20.03.2025

2503068

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðir í flokki II að Dílaflöt II.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

10.Umsögn um gistileyfi - Skógar Hostel (Vistarvegur 1)- 13.03.2025

2503038

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðir í flokki II að Vistarvegi 1, Skógum.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

11.Skipulags- og umhverfisnefnd - 64

2503006F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 64. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar.
Fundargerð staðfest í heild.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 64 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis og fyrirhugaða staðsetningu.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 64 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 64 Afgreiðslu frestað.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 64 Skipulagslýsingin var send til umsagnaraðila frá 6. ágúst með athugasemdarfrest til og með 6. september 2024. Vegagerðin gerir ekki athugasemdir við lýsinguna en bendir á að halda skuli fjölda vegtenginga í lágmarki, að afmörkun veghelgunarsvæðis er 15 m frá miðlínu vegar og kröfur um héraðsvegi. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerir engar athugasemdir en Umhverfisstofnun bendir á mikilvægi þess að fjallað sé um áhrif breytinganna á loftslags- og vatnamál ásamt vistgerðir sem hafa mjög hátt verndargildi. Náttúruverndarstofnun tekur undir umsögn Umhverfisstofnunar. Óskað var eftir umsögn Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins sem telur landið auðvelt til ræktunar en hluti landsins krefjist talsverðra framkvæmda við framræslu ef tekið er til ræktunar. Skipulagsstofnun bendir m.a á að áformin samræmist ekki landsskipulagsstefnu og stefnu aðalskipulag sveitarfélagsins. Að mati skipulags- og umhverfisnefndar hefur verið fjallað um ofangreindar umsagnir en skipulags- og umhverfisnefnd fer fram á að aðalskipulagsbreyting og deiliskipulagstillaga verði auglýst samhliða.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagsbreyting verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar fyrir auglýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 64 Aðalskipulagslýsingin var kynnt fyrir almenningi með opnu húsi þann 13. mars 2024 frá kl. 8:30 til kl. 10 og send til umsagnaraðila frá 13. febrúar 2025 með umsagnarfrest til og með 8. mars 2024. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gera ekki athugasemdir. Vegagerðin bendir á fjarlægð milli vegtenginga og óskar eftir samráði við sveitarfélagið. Náttúruverndarstofnun fjallar um að uppbyggingin hafi neikvæð áhrif á fuglalíf. Skipulagsstofnun bendir m.a. á að taka afstöðu til 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og mat á umhverfisþáttum. Brugðist hefur verið við ofangreindum umsögnum í skipulagslýsingunni og samráð við Vegagerðina mun eiga sér stað við gerð deiliskipulags. Minjastofnun Íslands veitti ekki umsögn.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagslýsingin verði send til skipulagsstofnunar og til yfirferðar fyrir auglýsingu skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 64 Skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfis- og garðyrkjustjóra að vinna málið áfram.

12.Fjölmenningarráð - 11

2503004F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 11. fundar Fjölmenningarráðs.
Fundargerð staðfest í heild.
  • 12.1 2503005 Hús frítímans
    Fjölmenningarráð - 11 The Multicultural Council thanks Stefán for the presentation and supports the idea of the Leisure House. The Council believes it would be a positive development for the entire community of Rangárþing eystra.
  • Fjölmenningarráð - 11 The Multicultural Council thanks Fræðslunet Suðurlands for the introduction and proposes that the Regional Council (Byggðarráð) offer this course to all employees of Rangárþing Eystra who do not have Icelandic as their first language.
  • Fjölmenningarráð - 11 Ongoing planning and organization for the Multicultural Festival.

13.Markaðs- og menningarnefnd - 25

2503003F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 25. fundar Markaðs- og menningarnefndar.
Fundargerð staðfest í heild.
  • 13.1 2503005 Hús frítímans
    Markaðs- og menningarnefnd - 25 Nefndin þakkar Stefáni fyrir greinargóða kynningu.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 25 Alls bárust 7 umsóknir þar sem óskað var eftir styrkjum að upphæð 3.180.000,- Til úthlutunar eru 1.750.000,-
    Markaðs- og menningarnefnd leggur til að eftirfarandi verkefni hljóti styrk úr haustúthlutun Menningarsjóðs Rangárþings eystra.

    Koppafeiti - 200.000 kr
    Lemos Lehmann - Tilfinningalandslög 200.000 kr
    Lemos Lehmann - Bio-Based Futures 150.000 kr
    Minningarsjóður Guðmundur Jónssonar frá Hólmi 300.000 kr
    Midgard Adventure 300.000 kr
    Tónlistarskóli Rangæinga 300.000 kr
    Jazz undir Fjöllum 300.000 kr

    Samþykkt samhljóða

14.Ungmennaráð - 40

2501001F

Lögð fram til umræðu og staðfestingar fundargerð 40. fundar Ungmennaráðs.
Fundargerð staðfest í heild.
  • 14.1 2411011 Ungmennaþing 2024
    Ungmennaráð - 40 Á þingið mættu yfir 50 ungmenni og unnið verður úr niðurstöðum á næsta fundi ungmennaráðs og þær síðan kynntar sveitarstjórn.

15.Bergrisinn; 82. fundur stjórnar - 24.02.2025

2503016

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 82. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

16.Samband íslenskra sveitarfélaga; 964. fundur stjórnar 07.02.2025

2503021

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 964. fundar stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

17.Samband íslenskra sveitarfélaga; 971. fundur stjórnar 28.02.2025

2503022

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 971. fundar stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

18.Samband íslenskra sveitarfélaga; 972. fundur stjórnar 11.03.2025

2503045

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 972. fundar stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

19.332. fundur Sorpstöðvar Suðurlands 18.03.2025

2503071

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 332. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

20.89. fundur Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu - 24.03.2025

2503082

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 89. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

21.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs; 243. fundur stjórnar - 24.02.2025

2503098

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 243 fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

22.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs; 245. fundur stjórnar - 27.03.2025

2503100

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 245. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

23.Tilkynning um niðurfellingu Lækjarhvammsvegar (2442-01) 25.03.2025

2503074

Lagt fram bréf Vegagerðarinnar um niðurfellingu Lækjarhvammsvegar af vegaskrá.
Lagt fram til kynningar.

24.Tilkynning um niðurfellingu Álfhólahjáleiguvegar (2537-01)

2503075

Lagt fram bréf Vegagerðarinnar um niðurfellingu Álfhólahjáleiguvegar af vegaskrá.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:24.