25. fundur 10. mars 2025 kl. 16:30 - 18:00 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Tómas Birgir Magnússon varamaður
    Aðalmaður: Christiane L. Bahner
  • Guri Hilstad Ólason aðalmaður
  • Ágúst Jensson varamaður
    Aðalmaður: Konráð Helgi Haraldsson
  • Kristín Jóhannsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Helga Guðrún Lárusdóttir starfsmaður
Dagskrá

1.Hús frítímans

2503005

Stefán Friðrik Friðriksson byggðarþróunarfulltrúi kynnir verkefnið Hús frítímans.
Nefndin þakkar Stefáni fyrir greinargóða kynningu.

2.Menningarsjóður Rangárþings eystra; vorúthlutun 2025

2502052

Markaðs- og menningarnefnd er mjög ánægð með þann fjölda góðra umsókna sem bárust í Menningarsjóðinn að þessu sinni. Menningarlífið í Rangárþingi eystra er í miklum blóma.
Alls bárust 7 umsóknir þar sem óskað var eftir styrkjum að upphæð 3.180.000,- Til úthlutunar eru 1.750.000,-
Markaðs- og menningarnefnd leggur til að eftirfarandi verkefni hljóti styrk úr haustúthlutun Menningarsjóðs Rangárþings eystra.

Koppafeiti - 200.000 kr
Lemos Lehmann - Tilfinningalandslög 200.000 kr
Lemos Lehmann - Bio-Based Futures 150.000 kr
Minningarsjóður Guðmundur Jónssonar frá Hólmi 300.000 kr
Midgard Adventure 300.000 kr
Tónlistarskóli Rangæinga 300.000 kr
Jazz undir Fjöllum 300.000 kr

Samþykkt samhljóða

Fundi slitið - kl. 18:00.