Neðst á heimasíðu Rangárþings eystra er viðburðadagatal sveitarfélagsins. Þar birtast þeir viðburðir sem að haldnir eru í sveitarfélaginu eða tengjast íbúum að einhverju leiti. Ef smellt er á hnappinn Allir viðburðir þá má sjá alla þá viðburði sem búið er að skrá inn í dagatalið en á forsíðunni birtast þrír hverju sinni.

Ef þið eruð að halda viðburð þá má gjarnan senda inn tilkynningu um hann með því að smella á hnappinn Senda viðburð eða senda tölvupóst á netfangið arnylara@hvolsvollur.is