Rangárþing eystra óskar eftir tilboðum í : „Gatngerð Hvolsvöllur 2023 – Hallgerðartún áfangi 3“

Verkið felur í sér gerð á nýjum götum í Hallgerðartúni á Hvolsvelli. Verktaki skal jarðvegsskipta götustæði samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annara veitulagna.

 

Helstu magntölur eru:

Gröftur 1955 m³

Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 7876 m³

Fráveitulagnir 958 m

Vatnsveitulagnir 416 m

Ljósastaurar 19 stk

Hitaveitulagnir 779 m

 

Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2023.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 29. mars 2023. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Guðmund Úlfar Gíslason, skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eysta með tölvupósti í netfangið ulfar@hvolsvollur.is , og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 18. apríl 2023 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

 

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi

Rangárþings eystra