Fundur vegna Vinnuskólans

Fundað verður með umsækjendum og foreldrum þeirra í Hvolnum í dag, þriðjudaginn 30. maí, kl. 18:00. 

Á fundinum verður farið yfir starfið, skyldur og réttindi ungmenna. Æskilegt er að allir mæti.

Vinnuskólinn er fyrir unglinga fædda 2007 - 2010. Starfstími vinnuskólans er frá 1. júní til 31. júlí. Vinnutími er frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga. Unglingar fæddir 2010 vinna ýmist frá 9:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00.