Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er kynnt lýsing að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024.

Hellishólar – Lýsing aðalskipulagsbreytingar

Lagt er til að gerð verði breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Breytingin felur í sér að landnotkun á ca 6,0 ha svæði á jörðinni Hellishólar, verður breytt í frístundabyggð (F).

Ofangreind skipulagslýsing verður kynnt fyrir almenningi með opnu húsi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli, mánudaginn 7. júní 2021 kl. 10:00 – 12:00. Einnig verður tillagan aðgengileg á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við skipulagslýsinguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 16. júní 2021.

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi