- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Fegrunar- og hreinsunarátaki Rangárþings eystra er nú lokið og viljum við þakka öllum þeim íbúum og fyrirtækjum sem lögðu sitt af mörkum.
Dagana 13.–25. ágúst tókum við höndum saman um að snyrta nærumhverfið okkar í aðdraganda Kjötsúpuhátíðarinnar. Íbúar og fyrirtæki tóku til hendinni með ýmsum hætti, meðal annars með því að snyrta gróður og lóðir, losa sig við gamla muni og fegra umhverfið.
Sveitarfélagið veitti aukna þjónustu og hefur starfsfólk áhaldahússins unnið að ýmsum undirbúningi fyrir Kjötsúpuhátíðina.
Í tengslum við átakið gafst íbúum jafnframt kostur á að senda sveitarfélaginu ábendingar um atriði í nærumhverfinu sem mætti bæta.
Farið hefur verið yfir þær ábendingar sem bárust og hefur þegar verið brugðist við hluta þeirra. Öðrum hefur verið komið áfram til viðeigandi starfsmanna eða þær settar til frekari skoðunar.
Ábendingarnar eru mikilvægt innlegg og hjálpa sveitarfélaginu að sjá nærumhverfið með augum íbúa.
Ávallt má senda inn ábendingar til sveitarfélagsins, en það er gert hér.
Átakið snerist þó ekki eingöngu um tiltekt!
Íbúar voru einnig hvattir til að koma saman með nágrönnum, halda götugrill og undirbúa skreytingar fyrir komandi Kjötsúpuhátíð. Þannig varð átakið líka tilefni til samveru og góðrar stemningar í hverfunum og kom umsókn frá fimm götum fyrir styrk.
Það þarf margar hendur til að halda samfélaginu okkar snyrtilegu og fallegu og hvert framlag skiptir máli.
Við þökkum öllum sem tóku þátt, sendu okkur ábendingar, tóku til hendinni við heimili sín og fyrirtæki eða lögðu sitt af mörkum með öðrum hætti.
Og síðast en ekki síst,
🎉 Góða skemmtun og sjáumst á Kjötsúpuhátíð