- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Dagana 13.–25. ágúst ætlum við að taka höndum saman og snyrta til í nærumhverfinu okkar. Við hvetjum íbúa og fyrirtæki til að taka þátt. Það getur til dæmis verið að tína rusl, snyrta gróður, laga til við hús og lóðir, losa sig við gamla muni og tæki og fleira.
Saman getum við gert heilmikið! 🌱
Viðbótargámum verður komið fyrir við grenndarstöðina á Hvolsvelli meðan á átakinu stendur. Tilvalið tækifæri til þess að losa sig við grófan úrgang sem kann að hafa dagað upp. Nánara fyrirkomulag og upplýsingar verða auglýst á næstu dögum.
Garðúrgang má líkt og áður fara með í Miðöldu, norðan við Hallgerðartún.
Miðalda, losun garðaúrgangs
🚗 Leið að losunarstað fyrir garðaúrgang
Ekið er norður Nýbýlaveg, fram hjá Hallgerðartúni. Þá er beygt til vinstri inn á ómerkta götu við enda byggðarinnar.
Götunni er fylgt og haldið áfram þar sem malbik endar, síðan beygt til vinstri og því næst til hægri.
Malarveginum er fylgt áfram meðfram túninu þar til komið er að losunarstaðnum við Miðöldu.
Ertu með eitthvað stórt eða þungt sem erfitt er að eiga við? Til dæmis bílhræ, vélarhluti, ónýt útileiktæki eða stór heimilistæki?
Hafðu samband við okkur og við skoðum með þér hvaða möguleikar eru í stöðunni.
Netfang: hvolsvollur@hvolsvollur.is
Sími: 488-4200
Ef þú veist um svæði þar sem mætti bæta umhirðu, ásýnd eða aðgengi getur þú sent okkur ábendingu. Allar ábendingar verða teknar til skoðunar.
Fegrunarátakið snýst ekki bara um tiltekt heldur líka um góða stemningu og samveru.
Við hvetjum því nágranna til að slá upp götugrilli, hittast og eiga góða stund saman. Og fyrst Kjötsúpuhátíðin er handan við hornið er þetta kjörið tækifæri til að leggja á ráðin um skreytingar götunnar!
Sveitarfélagið ætlar að leggja götugrillum lið með styrk sem hægt er að sækja um hér:
👉 Sækja um styrk fyrir götugrill
Með haustinu er stefnt að því að bjóða aukna þjónustu við hreinsun líkt og fyrri ár. Nánari upplýsingar verða veittar síðar.
📸 Sýnum hvað við getum gert saman! Hvetjum alla til að deila árangrinum og góðri stemningu.