- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Meginbreytingin felst í því að komið verður upp sjóði sem bændur og landeigendur geta sótt í ef þeir telja þörf á að ræsa fram skurði á sínu landi. Með þessu fá þeir aukið svigrúm til að meta þörfina og sjá um framkvæmdina þegar þeim hentar.
Sjóðurinn heldur utan um árleg framlög sveitarfélagsins og er þeim deilt út miðað við hvern kílómetra skurðs. Sveitarfélagið fylgist svo með og metur framkvæmdirnar að þeim loknum.
Tveir valkostir eru í boði fyrir landeigendur:
Landeigandi annast hreinsun: Landeigandi sækir um að sjá sjálfur um verkið og fær styrk frá sveitarfélaginu sem er greiddur út að lokinni úttekt.
Sveitarfélagið annast hreinsun: Matsnefnd fer yfir umsóknir og tekur ákvörðun um framkvæmd byggt á þörf, ástandi og fjárheimildum hverju sinni.
Hverfisvernd: Þeir skurðir sem hér um ræðir njóta hverfisverndar samkvæmt skipulagi, sem kveður á um skyldu til að halda þeim opnum. Því er ekki talin þörf á að endurnýja þinglýsta samninga sem eru að renna út á næstu árum.
Ábyrgð landeigenda: Mikilvægt er að hafa í huga að allur frágangur að verki loknu er á ábyrgð landeiganda. Það á við um efni sem kemur upp úr skurðum (ruðning og uppkast), sem og girðingar eða brýr sem kunna að raskast.
Nýir skurðir: Eingöngu þeir skurðir sem voru í kerfinu um síðustu áramót (2024/2025) tilheyra þessu fyrirkomulagi. Nýir skurðir bætast ekki við nema með samþykki skipulags- og umhverfisnefndar.
Umsóknarfrestur er til 1. maí ár hvert. Hægt er að nálgast eyðublað fyrir umsóknir og ábendingar á heimasíðu sveitarfélagsins https://www.hvolsvollur.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-og-abendingar-um-upphreinsun-safnskurda . Ef umsóknir berast eftir frestinn verður metið sérstaklega hvort hægt sé að bregðast við þeim á yfirstandandi ári.
Með þessum breytingum vonast sveitarfélagið til að tryggja betri virkni skurðanna og koma í veg fyrir neikvæð áhrif á aðliggjandi jarðir, með góðu samstarfi við íbúa og landeigendur.