Umsókn og ábendingar um upphreinsun safnskurða

Þetta form er ætlað fyrir safnskurði í Landeyjum og undir Eyjafjöllum sem njóta hverfisverndar.

Ávinningur og markmið Góð viðhald og upphreinsun safnskurða er mikilvægt verkefni. Markmiðið með framkvæmdunum er að tryggja virkni skurðanna og koma í veg fyrir að þeir valdi neikvæðum áhrifum á aðliggjandi jarðir eða land nágranna. Með því að senda inn umsókn eða ábendingu aðstoðar þú sveitarfélagið við að fá yfirsýn yfir ástandið og forgangsraða framkvæmdum.

Valkostir við framkvæmd:

  • Sveitarfélagið annast hreinsun: Matsnefnd fer yfir umsóknir og tekur ákvörðun um framkvæmdir með hliðsjón af þörf, ástandi skurða, gildandi samningum og fjárheimildum sveitarfélagsins.

  • Landeigandi annast hreinsun: Landeigendur geta óskað eftir því að annast verkið sjálfir á sínu landi. Sveitarfélagið getur þá komið að málum með styrk sem greiddur er út að framkvæmd og úttekt lokinni.

Gott að hafa í huga: Vinsamlegast athugið að allur frágangur að framkvæmd lokinni er á ábyrgð landeiganda. Þetta á til að mynda við um frágang á efni sem kemur upp úr skurðunum (ruðning og uppkast) ásamt girðingum, brúm eða öðru sem kann að raskast við verkið. Sveitarfélagið og verktakar þess munu þó ávallt leitast við að halda jarðraski í lágmarki.

Umsóknarfrestur er til 1. maí ár hvert. Ef umsókn berst eftir þann tíma verður metið sérstaklega hvort unnt sé að taka hana til afgreiðslu á yfirstandandi ári.

Safnreitaskil
Safnreitaskil
Óska eftir verktöku?

Óska eftir að vinna verkið á eigin vegum