269. fundur 05. desember 2024 kl. 08:15 - 09:04 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Árný Hrund Svavarsdóttir formaður
  • Tómas Birgir Magnússon aðalmaður
  • Bjarki Oddsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð.

1.Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2024

2412004

Lagður fram til umfjöllunar og samþykktar viðauki 3 um rekstur við fjárhagsáætlun 2024.
Byggðarráð samþykkir viðauka 3 og leggur til við sveitarstjórn að hann verði samþykktur.

2.Gjaldskrá vatnsveita 2025

2411094

Lögð fram til umræðu gjaldskrá vatnsveitu 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

3.Gjaldskrá fráveita 2025

2411089

Lögð fram til umræðu gjaldskrá fráveitu 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

4.Gjaldskrá félagsheimila 2025

2411093

Lögð fram til umræðu gjaldskrá félagsheimila 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

5.Gjaldskrá Skógarveita 2025

2411088

Lögð fram til umræðu gjaldskrá Skógaveitu 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

6.Gjaldskrá fjallaskála 2025

2411092

Lögð fram til umræðu gjaldskrá fjallaskála 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

7.Gjaldskrá fyrir hundahald 2025

2411091

Lögð fram til umræðu gjaldskrá um hundahald 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

8.Gjaldskrá fyrir kattahald 2025

2411090

Lögð fram til umræðu gjaldskrá um kattarhald 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

9.Gjaldskrá og reglur fyrir skólaskjól Hvolsskóla 2025

2411086

Lögð fram til umræðu gjaldskrá og reglur fyrir skólaskjól Hvolsskóla 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

10.Gjaldskrá leikskóla 2025

2411087

Lögð fram til umræðu gjaldskrá leikskólans 2025.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

11.Gjaldskrá Íþróttamiðstöð 2025

2411085

Lögð fram til umræðu gjaldskrá Íþróttamiðstöðvarinnar 2025.

Heilsu íþrótta og æskulýðsnefnd fjallaði um gjaldskrá Íþróttamðistöðvar. Eftirfarandi bókun var samþykkt:

HÍÆ nefnd skoðaði gjaldskrá og lagið til fyrir árið 2025 að aðgangseyrir fari úr 1.200 krónur í 1.500 krónur og leiga á handklæði, sundfötum og aðgangseyrir verði 2.400 krónur. Annað verði óbreytt.
Byggðarráð leggur til að stakt gjald í sund verði 1.300 kr og leiga á handklæði, sundfötum og aðgangseyrir verði 2.400 krónur.
Byggðarráð staðfestir gjaldsskrá fyrir sitt leiti og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.

12.Húsnæðisáætlun Rangárþings eystra 2025

2411032

Lögð fram til umræðu og kynningar endurskoðuð Húsnæðisáætlun Rangárþings eystra 2025 sem nú er í vinnslu hjá embætti skipulags- og byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

13.Vinna við endurskoðun jafnréttisáætlunar

2410064

Lögð fram til umræðu og samþykktar endurskoðuð jafnréttisáætlun Rangárþings eystra 2022-2026.
Byggðarráð samþykkir endurskoðaða jafnréttisáæltun Rangárþings eystra 2022-2026.

14.Umsagnarbeiðni - Brennuleyfi - Goðaland þrettándabrenna

2411074

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um brennuleyfi vegna þrettándabrennu við Goðaland í Fljótshlíð.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.

15.Umsagnarbeiðni - Brennuleyfi - áramót

2411050

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um brennuleyfi vegna áramótabrennu á Hvolsvelli.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.

16.Skipulags- og umhverfisnefnd - 56

2410009F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 56. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til tillögunum verði hafnað og að svæðið verði gert sem opið svæði sem nýtist til dæmis sem leiksvæði og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að landskiptin verði samþykkt ásamt hinu nýja staðfangi.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Aðalskipulagsbreytingin var send til umsagnaraðila og auglýst frá 17. september með athugasemdafrest til og með 31. október 2024. Umsagnir bárust frá Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og Veitum en gera engar athugasemdir. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerir athugasemd við að ekki sé nógu skýrt um hvaða vatnsból sé að ræða en neysluvatn verður fengið úr Vatnsveitu Vestmannaeyja (VB14) sem liggur í gegnum land Syðstu-Merkur. Minjastofnun Íslands gerði engar athugasemdir við skipulagstillöguna en svæðið hefur verið fornleifaskráð, finnist fornminjar skal tilkynna þær með vísan í lög um menningarminjar nr. 80/2012.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði afgreidd skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu frá 17. september með athugasemdarfrest til og með 31. október 2024. Veitur og Umhverfisstofnun hafa kynnt sér tillöguna og gera engar athugasemdir ásamt Veðurstofu Íslands. Vegagerðin bendir á að afmarka skuli veghelgunarsvæði og málsetja þurfi fjarlægð milli tenginga á uppdráttum. Brugðist hefur verið athugasemdum Vegagerðarinnar með því að mæta umbeðnum upplýsingum við. Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir umsögn Vegagerðarinnar um að lágmarks fjarlægð milli vegtenginga skuli vera 200 m. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fjallar um að skerpa þurfi á hvaða neysluvatnið er tekið en það verður tengt við Vestmannaeyjar vatnsveitu sem liggur í gegnum landið. Heilbrigðiseftirlitið bendir einnig á að fyrirkomulag fráveitu sé ekki nógu skýrt. Lóðir eru heldur stórar og mikið landslag er á svæðinu og því verður haldið hreinsivirkjum í lágmarki og samnýtt eftir þegar hægt er. Byggingarheimildum hefur verið breytt en nú verður heimilt að byggja 450 m² íbúðarhús með bílskúr auk 100 m² vinnustofu eða gróðurhúss.
    Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í beiðnina en bendir á að Gimbratún 31 er hluti af frístundarsvæði skv. aðalskipulagi og því þarf að breyta svæðinu frístundarsvæðinu (F13) í íbúðarbyggð. Nefndin bendir einnig á að mannvirkin á svæðinu þurfa einnig að uppfylla kröfur íbúðahúsa. Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Skipulagsbreytingin var send til umsagnaraðila og auglýst frá 25. september með athugasemdafresti til og með 8. nóvember 2024. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerir engar athugasemdir en Umhverfisstofnun fjallar um fráveitumál á Hvolsvelli. Forhreinsun sé ófullnægjandi og viðtaki, sem eru skurðir og lækir með litlu vatni, sé ekki talinn vera góður og töluverð bakteríumengun í skurðum. Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að sveitarfélagið er upplýst um stöðu fráveitumála í sveitarfélaginu, unnið er að heildarlausn fyrir fráveitumál á Hvolsvelli, þar sem blágrænar lausnir verða nýttar fyrir ofanvatn innan þéttbýlis og unnið að bættri hreinsun fráveitu í samvinnu við stærstu rekstraraðila innan þéttbýlis.
    Vegagerðin segist ekki geta samþykkt breytingar á skipulagi sem útiloka framtíðarlegu þjóðvegarins, sem hefur verið gert ráð fyrir í skipulagi um langt skeið, nema að sýnt sé fram á nýtt vegstæði fyrir Hringveg til framtíðar í aðalskipulagsbreytingu.
    Skipulags- og umhverfisnefnd tekur ekki undir athugasemd Vegagerðarinnar þar sem núverandi veglína skerðist ekki. Horfa þarf á framtíðarlegu Hringvegarins í stærra samhengi og taka mið út frá þeim breytingum sem hafa átt sér stað á undanförnum árum. Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar því að Vegagerðin fjalli um framtíðaráform í sveitarfélaginu enda er ástandinu verulega ábótavant og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að taka upp samtal við Vegagerðina um framtíðaráform vegarins sem og aðra stofn- og tengivegi í sveitarfélaginu.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu, frá 25. september með athugasemdafrest til og með 8. nóvember 2024. Umhverfisstofnun hefur kynnt sér tillöguna og veitir ekki umsögn, Míla bendir á lagnir sem eru innan svæðisins ásamt Veitum en samtal milli veitustofnana og sveitarfélags hefur þegar átt sér stað og miðar vel. Vegagerðin hafnar nýrri tengingu við Austurveg og tekur skipulags- og umhverfisnefnd undir með Vegagerðinni að aðkoma skuli vera frá Vestri-Garðsauka. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fjallar um fjölda herbergja fyrir hreyfihamlaða en þeim hefur verið fjölgað skv. kröfum byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst, frá 14. september til og með 31. október 2024. Umhverfisstofnun hefur kynnt sér tillöguna og veitir ekki umsögn, Vegagerðin gerir ekki athugasemd en Heilbrigðiseftirlit Suðurlands leggur bendir á að samnýta skuli hreinsivirki og bendir á ósamræmi í texta. Brugðist hefur verið við athugasemdum Heilbrigðiseftirlitsins með því að samnýta hreinsivirki og skerpt hefur verið á texta.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsögn vegna matsáætlunar verði send til Skipulagsstofnunar vegna áforma við Holtsós undir Eyjafjöllum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 56

17.Fjölskyldunefnd - 21

2409005F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 21. fundar fjölskyldunefndar.
Fundargerð staðfest í heild sinni.

18.Ungmennaráð - 38

2411003F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 38. fundar ungmennaráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Ungmennaráð - 38
  • Ungmennaráð - 38 Formaður ungmennaráðs er Fannar Óli Ólafsson, Varaformaður Þórður Kalmann, Ritari er Björk Friðriksdóttir, Margrét Ósk Guðjónsdóttir sér um samfélagsmiðla, fulltrúi í ungmennaráði Suðurlands er áfram Björk Friðriksdóttir. Auk þeirra skipa ungmennaráð Rangárþings eystra starfsárið 2024-2025, Helga Dögg Ólafsdóttir, Elín Fríða Geirsdóttir Waage og Guðjón Ingi Guðlaugsson.
  • Ungmennaráð - 38 Nefndarmenn fengu sent í tölvupósti eintak af ,,Handbók ungmennaráða", þau beðin um að kynna sér hana og betur verður farið í bókina á næsta fundi.
  • Ungmennaráð - 38 Ólafur Örn fór yfir það helsta sen gerst hefur og sem tengjist ungu fólki í sveitarfélaginu.
  • Ungmennaráð - 38 Ungmennaráð leggur til að félagsmiðstöðin taki upp ungmennahús fyrir aldurinn 16-20 ára amk á meðan að verkfalli stendur. Ungmennahús verði í boði fyrir bæði ungmenni í eystra og ytra.
  • 18.6 2411011 Ungmennaþing 2024
    Ungmennaráð - 38 Barna- og ungmennaþing hefur verið haldið undanfarin ár í Rangárþingi eystra. Þingið hefur ávallt verið í nóvember en þvi miður næst það ekki í ár vegna anna nefndarmanna. Hinsvegar er stefnt að því að hafa barna- og ungmennaþing laugardaginn 18. janúar. Nefndarmenn fóru fyrir spurningar og skiptu með sér verkum.
    Forvarnir og menning: Guðjón (og Óli)
    Skólamál: Björk og Elín
    Félagslífið og íþróttir: Fannar og Þórður
    Umhverfi og skipulag: Margrét og Helga

    Fyrirkomulagið verður svipað og síðustu ár. Börnum verður skipt í hópa eftir aldri og fulltrúar úr ungmennaráði spyrja spurninga. Boðið verður upp á pizzur ofl.

19.Jafnréttisráð - 1

2411006F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 1. fundar jafnréttisráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • 19.1 2411036 Kosning varaformanns í jafnréttisráð
    Jafnréttisráð - 1 Lagt til að Guðni Ragnarsson verði varaformaður.
  • 19.2 2411037 Fundartími jafnréttisráðs
    Jafnréttisráð - 1 Ráiðið ákveður að funda á mánudögum kl 16:00 eftir þörfum.
  • 19.3 2411022 Erindisbréf jafnréttisráðs Rangárþings eystra
    Jafnréttisráð - 1 Farið yfir og gerðar breytingar á fyrirliggjandi erindisbréfi jafnréttisráðs.
  • 19.4 2410064 Vinna við endurskoðun jafnréttisáætlunar
    Jafnréttisráð - 1 Starfsmanni falið að vinna að breytingum og verkefnum í jafnréttisáætlun í samræmi við umræðu fundarins.

20.Jafnréttisráð - 2

2411014F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 2. fundar jafnréttisráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • 20.1 2411100 Kynning frá Jafnréttisstofu um hlutverk sveitarfélaga
    Jafnréttisráð - 2
  • 20.2 2410064 Vinna við endurskoðun jafnréttisáætlunar
    Jafnréttisráð - 2 Ráðið samþykkir endurskoðun jafnréttsáætlunar. Ráðið vill vekja athygli á að hlutfall kynja í fastanefndum sveitarfélagsins er ekki jafnt og því ekki í samræmi við jafnréttisáætlun sveitarfélagsins né lög.
  • 20.3 2411022 Erindisbréf jafnréttisráðs Rangárþings eystra
    Jafnréttisráð - 2 Ráðið samþykkir erindisbréfið með þeim breytingum sem gerðar hafa verið af ráðinu.

21.Fjölmenningarráð - 8

2411009F

Lögð fram til umræðu og samþykktar fundargerð 8. fundar fjölmenningarráðs.
Fundargerð staðfest í heild sinni.
  • Fjölmenningarráð - 8 Drafts of the Multicultural calendar for 2025 discussed.
  • 21.2 2411055 Questionnaire
    Fjölmenningarráð - 8 Questionnaire put together and discussed, a try to hear from residents what events they would like to see for the coming year.
  • 21.3 2404160 Other issues
    Fjölmenningarráð - 8 Various other issues discussed.

22.Skógasafn; fundur stjórnar - 10.09.2024

2411071

Lögð fram til staðfestingar fundargerð stjórnar Skógasafns frá 10.09.24.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

23.Skógasafn; fundur stjórnar - 03.10.2024

2411069

Lögð fram til staðfestingar fundargerð stjórnar Skógasafns frá 03.10.24.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

24.Skógasafn; fundur stjórnar - 09.10.2024

2411070

Lögð fram til staðfestingar fundargerð stjórnar Skógasafns frá 09.10.24.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

25.Skógasafn; fundur stjórnar 18.10.2024

2411072

Lögð fram til staðfestingar fundargerð stjórnar Skógasafns frá 18.10.24.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

26.Skógasafn; fundur stjórnar 12.11.2024

2411073

Lögð fram til staðfestingar fundargerð stjórnar Skógasafns frá 12.11.24.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

27.Samband íslenskra sveitarfélaga; 956. fundur stjórnar 20.11.2024

2411082

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 956. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.

28.Samband íslenskra sveitarfélaga; 957. fundur stjórnar 22.11.2024

2411083

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 957. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

29.Samband íslenskra sveitarfélaga; 958. fundur stjórnar 24.11.2024

2411099

Lögð fram til umræðu og kynningar fundargerð 958. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

30.Atvinnustefna RE og RY

2411056

Lögð fram til kynningar undirbúningur að sameiginlegri atvinnustefnu fyrir Rangárþing eystra og Rangárþing ytra.
Lagt fram til kynningar.

31.Skortstaða í Rangárvallasýslu - Ívilnanaheimlidir

2411053

Lögð fram til kynningar bréf um ívilnanaheimild til sérfræðistarfa.
Lagt fram til kynningar.

32.Skaftárhreppur; Bókanir v. Ytri-Skóga

2411067

Lögð fram til kynningar bókanir Skaftárhrepps vegna Ytri-Skóga.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:04.