21. fundur 20. nóvember 2024 kl. 13:00 - 14:09 á skrifstofu Rangárþings eystra
Nefndarmenn
  • Rafn Bergsson
  • Lea Birna Lárusdóttir
  • Ásta Brynjólfsdóttir
  • Sigurmundur Páll Jónsson áheyrnarfulltrúi foreldra
  • Unnur Óskarsdóttir áheyrnarfulltrúi kennara
  • Sigríður Karólína Viðarsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Sólbjört Sigríður Gestsdóttir leikskólastjóri
  • Margrét Jóna Ísólfsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Margrét Jóna Ísólfsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður Fjölskyldunefndar boðar fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð ef einhverjar eru.
Heiðbrá Ólafsdóttir, Ágúst Leó Sigurðsson og Sandra Sif Úlfarsdóttir boða forföll á fundinn og ekki tókst að boða vara menn í þeirra stað.

1.Leikskólinn Aldan; Ársskýrsla 2023-2024

2411040

Árskýrsla Leikskólan Öldunnar fyrir skólaárið 2023-2024 lögð fram til umræðu.
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir greinargóða árskýrslu. Fjölskyldunefnd lýsir yfir ánægju með hversu vel starfið gengur og hversu vel gengur að aðlagast nýju húsnæði skólans.

2.Leikskólinn Aldan; Starfsáætlun 2024-2025

2411039

Starfsáætlun Leikskólans Öldunnar fyrir skólaárið 2024-2025 lögð fram til samþykktar og umræðu.
Starfsáætlun leikskólans Öldunnar fyrir skólaárið 2024-2025 samþykkt.

3.Erindi B-lista vegna aukinnar áfengisneyslu ungmenna

2411044

Á sveitastjórnarfundi þann 12. september var lögð fram bókun frá B-lista þar sem m.a. koma fram áhyggjur af aukinni áfengisneyslu meðal ungmenna í sveitafélaginu. Þessi bókun var lögð fram án nokkurrar umræðu í kjölfarið. Því leggjum við til að þessi mál verði rædd í fjölskyldunefnd með það að markmiði að koma með tillögur um hvernig hægt er að koma í veg fyrir óæskilega hópamyndun og unglingadrykkju á Kjötsúpuhátíðinni. Eins og fram kemur í bókun B-listans þá er hátíðin okkur mikilvæg til að halda uppi menningu og skapa líf og gleði í sveitafélaginu því þykir okkur það svartur blettur á okkar annars góða samfélagi ef ekkert er gert varðandi þessi mál"
Fjölskyldunefnd þakkar fyrir gott innlegg og þarfar umræður.
Málið er þegar komið í ferli innan sveitarfélagsins sem er vel. Mikilvægt er að virkja foreldrasamfélagið og efla forvarnastarf.

4.Fjölmenningarráð - 5

2405001F

Lögð fram fundargerð 5. fundar Fjölmenningarráðs.
Lagt fram til kynningar.

5.Fjölmenningarráð - 6

2409001F

Lögð fram fundargerð 6. fundar Fjölmenningarráðs.
Lagt fram til kynningar.

6.Fjölmenningarráð - 7

2410002F

Lögð fram fundargerð 7. fundar Fjölmenningarráðs.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:09.