- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Ólafur Elí Magnússon, íþróttakennari, hefur hlotið samfélagsviðurkenningu Rangárþings eystra. Viðurkenningin er veitt þeim einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum eða félagasamtökum sem standa sig vel í að efla samfélagið, láta gott af sér leiða og eru öðrum góð fyrirmynd.
Markaðs- og menningarnefnd var einhuga í ákvörðun sinni um að veita Ólafi Elí viðurkenninguna að þessu sinni og þakkar jafnframt fyrir þær fjölmörgu tilnefningar sem bárust frá íbúum.
Ólafur Elí hefur um áratugaskeið unnið mikilvægt starf fyrir samfélagið okkar, þá sérstaklega í þágu barna, ungmenna og íþróttastarfs í sveitarfélaginu. Með elju, jákvæðni og ríkum vilja til að leggja sitt af mörkum hefur hann haft mótandi áhrif á kynslóðir íbúa. Hann er góður fulltrúi þeirra sem gera samfélagið betra með nærveru sinni og störfum.
Sveitarfélagið óskar Ólafi Elí innilega til hamingju með samfélagsviðurkenninguna og færir honum kærar þakkir fyrir hans góða framlag til samfélagsins í Rangárþingi eystra.