- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Allt frá árinu 2018 hefur KFR lagt mikla áherslu á að byggja upp öflugan meistaraflokk kvenna. Markmiðið hefur verið skýrt: að tryggja að stúlkur hafi tækifæri til að stunda sína íþrótt áfram eftir að grunnskólagöngu lýkur.
Einn af lykilþáttunum í þessu starfi er að félagið býður upp á æfingar fyrir 2. flokk og eldri leikmönnum að kostnaðarlausu. Þetta framtak hefur skilað góðum árangri og gert það að verkum að hægt hefur verið að halda úti öflugu starfi fyrir þennan aldurshóp. Stúlkurnar hafa meðal annars tekið þátt í Íslandsmótinu í Futsal og eru nú skráðar til leiks í 2. deild kvenna á komandi sumri.
Viktor Steingrímsson tók við verðlaununum fyrir hönd KFR úr hendi Þorvaldar Örlygssonar, formanns KSÍ, í tengslum við ársþing sambandsins.
Við hjá Rangárþingi eystra erum afar stolt af þessari viðurkenningu. Hún sýnir það mikilvæga starf sem unnið er hjá KFR til að tryggja jafnan hlut allra í íþróttastarfinu okkar. Við óskum félaginu og öllum þeim sem að þessu hafa komið innilega til hamingju.