Tilnefningar til Íþróttamanns Rangárþings eystra fyrir árið 2025-2026 voru kynntar á Kjötsúpuhátíð, þar sem sjónum var beint að mikilvægi íþróttastarfs í sveitarfélaginu. Íþróttastarf í Rangárþingi eystra snýst ekki aðeins um mismunandi íþróttagreinar, heldur fyrst og fremst um samfélagið og þau börn og ungmenni sem eru framtíðin okkar. Í gegnum íþróttir fá þau tækifæri til að setja sér markmið, taka ábyrgð, takast á við mótlæti og mynda mikilvæg félagsleg tengsl.

Að baki þessu starfi stendur fjöldi fólks sem á þakkir skildar. Öflug íþróttafélög, metnaðarfullir þjálfarar, styðjandi foreldrar og duglegir sjálfboðaliðar gefa vinnu sína og tíma til að halda íþróttalífinu gangandi. Sveitarfélagið leggur sömuleiðis sitt af mörkum til að styðja við þetta mikilvæga starf. Frístundastyrkurinn, sem nemur 57.000 krónum fyrir hvert barn, er skýr stuðningur við fjölskyldur til að auðvelda þátttöku. Auk þess veitir sveitarfélagið beinan fjárhagslegan stuðning, tryggir aðgengi að íþróttamannvirkjum og stendur að íþrótta- og afrekssjóði sem styður bæði við afreksfólk og almenna uppbyggingu.

Á Kjötsúpuhátíð er hefð fyrir því að veita þeim viðurkenningu sem skara fram úr, leggja hart að sér og eru öðrum góðar fyrirmyndir. Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd fór vandlega yfir þær tilnefningar sem bárust í ár. Þar sem tveir hinna tilnefndu eiga jafnframt sæti í nefndinni var varamönnum kallað til svo að valferlið gæti farið fram með fullkomlega eðlilegum og faglegum hætti.

Þau sem tilnefnd voru sem Íþróttamaður Rangárþings eystra árið 2025-2026 eru Elín Kristín Ellertsdóttir í skotfimi, Andri Már Óskarsson í golfi, Ívar Ylur Birkisson í frjálsum íþróttum, Hans Þór Hilmarsson í hestamennsku, Helgi Valur Smárason í fótbolta, Védís Ösp Einarsdóttir í fótbolta, og þær Sigríður Sigurjónsdóttir og Hulda Sigurjónsdóttir í kraftlyftingum. Við óskum þeim öllum til hamingju með tilnefninguna og þann góða árangur sem þau hafa náð.

Hans Þór Hilmarsson varð fyrir valinu sem íþróttamaður ársins 2025-2026

Hans Þór Hilmarsson átti afar sterkt keppnisár 2026 og náði góðum árangri á stærstu mótum ársins. Hann hóf árið af krafti í Meistaradeild Líflands þar sem hann varð í öðru sæti í fimmgangi á Öl frá Reykjavöllum. Á Íslandsmóti bætti hann svo við silfur verðlaunum í 150 metra skeiði á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði á tímanum 14,03 sekúndum sem jafnframt er fjórði besti tími ársins. Hápunktur ársins var þó án efa sigur Hans Þórs og Sindra frá Hjarðartúni í A-flokki gæðinga á Landsmóti hestamanna á Hólum. Þar stóðu þeir uppi sem Landsmótsmeistarar eftir glæsilega frammistöðu og hlutu 9,13 í einkunn. Sigur í A-flokki á Landsmóti er einn eftirsóttasti og virtasti titill sem knapi getur unnið hér á landi og stendur upp úr á glæsilegu keppnisári Hans Þór Hans Þór Hilmarsson er flott fyrirmynd innan vallar sem utan